fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Óska eftir því að fá Trent fyrr – Getur enn spilað á HM þó svo að Liverpool neiti

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 6. maí 2025 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid hefur rætt við Liverpool um að fá Trent Alexander-Arnold fyrr til félagsins svo hann nái HM félagsliða í Bandaríkjunum í sumar.

Trent tilkynnti í gær að hann myndi fara frítt frá Liverpool í sumar þegar samningur hans rennur út. Það hefur ekki verið staðfest að hann fari til Real Madrid en á því eru allar líkur.

Skiptin ganga að óbreyttu í gegn um mánaðarmótin júní-júlí en Real Madrid vonast til að fá hann fyrir 18. júní, en þá hefur liðið leik á HM og mætir Al-Hilal.

Neiti Liverpool þessari beiðni Real Madrid gæti Trent enn náð að koma við sögu á HM, en félög hafa leyfi til að skrá leikmenn milli 27. júní og 3. júlí. Í því tilfelli myndi enski bakvörðurinn aðeins missa af riðlakeppninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?

Langskotið og dauðafærið – Stórsigur í vændum á Emirates?
433Sport
Í gær

Óvænt í titilbaráttu og á besta skriðinu í yfir hundrað ár

Óvænt í titilbaráttu og á besta skriðinu í yfir hundrað ár
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl
433Sport
Í gær

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu