fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Klámstjarna segir þetta hafa verið erfiðast við að byrja í iðnaðinum – Ekki ástæðan sem flestir hefðu giskað á

433
Föstudaginn 11. apríl 2025 19:30

Danny Mointain

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru ekki margir knattspyrnumenn sem snúa baki við draumi sínum um frama á fótboltavellinum til þess að gerast klámstjörnur. Annað eins hefur þó komið fyrir.

Hér fyrir neðan eru sögur tveggja leikmanna sem yfirgáfu fótboltann og fóru í klámiðnaðinn.

Danny Mountain

Á unglingsárunum var Mountain í herbúðum Southampton og æfði í akademíunni þar. Hann vakti til að mynda áhuga liða eins og Chelsea, Tottenham og West Ham á sínum tíma.

Fyrrum knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Alan Ball sagði föður Mountain að hann gæti náð langt þegar hann var aðeins 12 ára gamall.

Ferli Mountain sem knattspyrnumaður lauk hins vegar þegar hann var 16 ára gamall vegna slæmra meiðsla. Þá sneri hann sér að trésmíði.

En svo komst Mountain í tæri við umboðsmann í klámiðnaðinum í gegnum kærustu sína á þeim tíma. Eitt leiddi af öðru og hann fór að starfa í bransanum.

„Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en ég var fullur sjálfstrausts. Ég var ekki stressaður fyrir kynlífs-hlutanum en mér fannst erfitt að tala fyrir framan myndavél. Ég gat ekki stjórnað andliti mínu af stressi,“ sagði Mountain.

Hann segir mömmu sinni ekki hafa litist á blikuna þegar hann byrjaði í klámi en að pabbi hans hafi hvatt hann áfram.

Mountain er í dag fertugur og ein hæst launaða karlkyns klámstjarna í Bretlandi.

Danny Mountain.

Davide Iovinella

24 ára gamall lék Iovinella með ASD Calcio í D-deildinni á Ítalíu. Hann langaði hins vegar að eignast meiri pening. Hann sótti þá um að fá að leika í klámmynd.

Hann fékk starfið og flutti síðan til Búdapest í Ungverjalandi til að koma sér inn í bransann þar.

„Þetta er ekki eins og að vera í rúminu með maka. Þú þarft að leggja hart að þér,“ sagði Iovinella um starfið.

Í dag er hann 31 árs gamall, býr enn í Búdapest og líður vel.

Davide Iovinella.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum