

Linda frá Liverpool vann 44 milljónir íslenskra króna um helgina með því að giska á sex hárrétt úrslit í enska boltanum um helgina.
Hún tippaði á leiki í enska bikarnum en einnig í neðri deildum.
Það var jöfnunarmark Bruno Fernandes fyrir Manchester United gegn Fulham sem tryggði Lindu sigurinn.
Hún giskaði á úrslit í venjulegum leiktíma en í þremur af sex leikjunum giskaði hún á 1-1. Fyrir það fékk hún 250 þúsund pund í vasann sinn.
Seðill Lindu:
Bournemouth 1-1 Wolves
QPR 1-2 Sheffield United
Middlesbrough 1-0 Derby
Man City 3-1 Plymouth
Newcastle 1-1 Brighton
Man Utd 1-1 Fulham
Úrslit eftir 90 mínútur.