fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fann ekki köttinn sinn og leitaði út um allt – Kærastinn vissi hver skelfilegur sannleikurinn var en sagði ekki orð

433
Miðvikudaginn 29. janúar 2025 08:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Jermaine Pennant er ansi skrautlegur karakter.

Hann gerði garðinn frægan með félögum á borð við Arsenal og Liverpool en það voru málefni utan vallar sem urðu til þess að hann stal oft fyrirsögnum.

Twitter-reikningurinn The Upshot rifjar upp nokkur af athæfum Pennant á ferlinum.

Pennant var aðeins fimmtán ára gamall þegar hann kom sér í vandræði sem unglingaliðsleikmaður Notts County. Hann vingaðist til að mynda við gengi og rétt náði einu sinni að flýja byssuslag.

Sextán ára gamall fór Pennant til Arsenal. Þar lék hann 26 leiki fyrir aðalliðið. Einbeiting hans var meira á djammið utan vallar og að sofa hjá fjölda kvenna.

Hann og Ashley Cole urðu bestu vinir hjá Arsenal og gerðu allt saman, meira að segja sváfu þeir hjá konum saman.

Þeir fóru oft í trekant með konu saman og gáfu þeir hvorum öðrum fimmu á meðan þeir sváfu hjá henni, að sögn Pennant síðar meir.

Það er lýsandi fyrir Pennant að hann spilaði fyrsta aðalliðsleik sinn fyrir Arsenal þunnur. Þó skoraði hann þrennu, eftir að hafa djammað til sex um morguninn.

Menn fengu þó leið á Pennant hjá Arsenal og sendu hann til að mynda á lán til Birmingham. Þar var hann tvisvar sinnum tekinn fullur undir stýri. Í það seinni reyndi hann að villa á sér heimildir og sagðist vera Cole félagi sinn.

Árið 2007 byrjaði Pennant með leikkonunni Jennifer Metcalfe. Þau fóru saman í frí til Dúbaí en þá hringdi vinur leikmannsins sem var að passa húsið hans í Pennant. Vinurinn tjáði honum að hundur Pennant hefði drepið kött Jennifer.

Pennant brást skjótt við og borgaði fólki til að koma heim til sín og þrífa eftir verknaðinn.

Þegar Pennant og Jennifer komu heim fór hún um hverfið að dreifa plaggötum af kettinum sínum þar sem hún hélt að hann væri týndur, hann var þögull sem gröfin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða