fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
433Sport

Hefur ekki tekið ákvörðun hvort hún áfrýi niðurstöðunni í mál Alberts

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. mars 2024 08:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Bryndís Helgadóttir, lögmaður konunnar sem kærði Albert Guðmundsson síðasta haust segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort niðurstöðu ákæruvaldsins verði áfrýjað.

Konan kærði Albert fyrir kynferðisbrot síðasta haust en landsliðsmaðurinn í knattspyrnu hefur hafnað allri sök í málinu.

Lögregla hafði rannsakað málið sem fór á borð ákærusviðs sem ákvað að fella það niður, var það ekki talið líklegt til sakfellingar miðað við niðurstöðuna.

Eva segir í svari við fyrirspurn að ekki sé búið að ákveða hvort þeirri ákvörðun verði áfrýjað.

„Það liggur ekki fyrir ákvörðun um það. Fresturinn til þess er út 22.mars nk,“ segir Eva Bryndís í skriflegu svari við fyrirspurn 433.is.

Albert hefur ekki mátt vera í íslenska landsliðshópnum vegna málsins samkvæmt reglum KSÍ, hins vegar er búist við að hann snúi aftur þegar Age Hareide kynnir nýjan landsliðshóp á föstudag.

Íslenska landsliðið er á leið í umspil um sæti á Evrópumótinu næsta sumar. Ákveði konan að áfrýja niðurstöðunni yrði Hareide hins vegar áfram bannað að velja Albert, miðað við regluverk sambandsins.

Ísland mætir Ísrael 21 mars og vinni liðið sigur þar fer liðið i úrslitaleik gegn Bosníu eða Úkraínu sem mætast í hinum leiknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið

Ótrúleg upprifjun af heimsfrægri stjörnu – Viðstöddum brugðið er hann skellti klámmynd í tækið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Leikmaður Chelsea gæti tekið áhugavert skref í sumar

Leikmaður Chelsea gæti tekið áhugavert skref í sumar
433Sport
Í gær

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust

Sjáðu myndband frá svakalegri uppákomu í Bandaríkjunum í nótt – Stjörnurnar slógust
433Sport
Í gær

Snýr aftur heim

Snýr aftur heim