fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

Ofurtölvan telur að United endi í neðri hlutanum – Chelsea fyrir ofan Arsenal

Victor Pálsson
Laugardaginn 21. desember 2024 12:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ofurtölvan fræga spáir því að Manchester United endi í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili.

Ofurtölvan er dugleg að spá í spilin á hverju einasta tímabili en hún spáir því að Liverpool verði meistari.

United breytti nýlega um stjóra en þrátt fyrir það telur tölvan að þeir rauðklæddu hafni í 13. sætinu í vetur.

Það er fyrir neðan lið eins og Fulham, Brentford og Nottingham Forest og væri mikið áfall fyrir stórliðið.

United er einmitt í 13. sæti deildarinnar þegar þetta er skrifað og verður árangurinn ekki mikið betri samkvæmt tölvunni.

Það er Forest sem þarf að taka á sig mikinn skell hins vegar en liðið er í fjórða sæti en mun enda í því tíunda.

Chelsea hafnar í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Liverpool en þar á eftir koma Arsenal, Manchester City, Aston Villa og svo Newcastle.

Leicester, Ipswich og Southampton eru þá á leiðinni niður ef þessi spá heldur vatni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Björn lýsir súrealískri upplifun í London – „Það er rosalegt að vera í 60 þúsund manna hópi af þunglyndissjúklingum“

Björn lýsir súrealískri upplifun í London – „Það er rosalegt að vera í 60 þúsund manna hópi af þunglyndissjúklingum“
433Sport
Í gær

Ekki átt sjö dagana sæla síðan Tómas flutti í bæinn – „Eðlilega er stemningin takmörkuð“

Ekki átt sjö dagana sæla síðan Tómas flutti í bæinn – „Eðlilega er stemningin takmörkuð“
433Sport
Í gær

Telja að þessi lið hafi valdið mestum vonbrigðum hér á landi

Telja að þessi lið hafi valdið mestum vonbrigðum hér á landi
433Sport
Í gær

Real Madrid skoðar Haaland eftir að Guardiola ákvað að hætta

Real Madrid skoðar Haaland eftir að Guardiola ákvað að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sendir frá sér yfirlýsingu eftir umdeilda Instagram færslu

Sendir frá sér yfirlýsingu eftir umdeilda Instagram færslu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Mourinho sagður vilja selja allt að tíu leikmenn – Mörg stór nöfn

Mourinho sagður vilja selja allt að tíu leikmenn – Mörg stór nöfn