
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en stjórnarmaður Aftureldingar beið fyrir utan búningsklefa dómarans eftir leik. Virðist hann hafa verið ósáttur með vítaspyrnu sem dæmd var í leiknum.
„Eftir leik í gærkvöldi gekk ég frá búningsklefa á leið heim. Fyrir utan búningsklefann á ganginum stóð þjálfari Aftureldingar sem spurðist fyrir um víti sem ég dæmdi í leiknum. Ég útskýrði ákvörðun mína sem hann kvaðst ósammála eftir að hafa farið yfir myndbandsupptöku. Ég sagði honum að ég gæti ekkert útskýrt nema hvað ég sá á þeirri stundu sem ég ákveð að dæma víti. Samskiptin við þjálfara Aftureldingar voru góð og fagmannleg.
Aftur á móti stendur maður sem sagðist heita Sigurbjartur. Hann var ekki jafn rólegur og talar ítrekað um myndbandsupptöku. Ég segi orðrétt „Mér er skítsama um eitthvað video“. Við þetta reiðist hann og segir orðrétt „Ertu fokking þroskaheftur“. Ég læt vita að ég muni tilkynna þetta til sambandsins sem gerir það að verkum að hann verður ógnandi í hegðun og gerir tilraun til að espa mig upp gegn sér. Hann setur höfuð fram með stíft augnaráð og er háttarfar hans greinilega til þess að ógna. Hann fer svo er er annar aðili sem biður hann að yfirgefa svæðið,“ segir meðal annars í skýrslu Ásmundar Þórs Sveinssonar dómara.
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ tók málið fyrir á fundi 14. maí og var litið svo á að framkoma stjórnarmanns Aftureldingar gæti varðar við grein 4.2 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót og grein 13.9 reglugerðar sambandsins um aga- og úrskurðarmál. Nefndin falaðist eftir greinagerð frá Aftureldingu.
Í þeirri greinagerð var haldið fram að einhver atriði í skýrslu dómara stæðust ekki skoðun en viðurkenndi Afturelding að Sigurbjartur Sigurjónsson, meðstjórnandi í stjórn knattspyrnudeildar Aftureldingar, hafi viðhaft óviðurkvæmileg ummæli í garð dómara að leik loknum.
Knattspyrnudeild félagsins var því sektuð um 25 þúsund krónur eins og áður sagði.