Karl Friðleifur Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Víking R. sem gildir til ársins 2026.
Þetta eru góð tíðindi fyrir Víkinga, enda Karl Friðleifur verið lykilmaður undanfarin ár. Hann kom upphaflega á láni frá Breiðabliki 2021 en gekk svo endanlega í raðir félagsins.
Karl Friðleifur hefur verið hluti af liði Víkings sem varð Íslandsmeistari 2021 og 2023 og bikarmeistari undanfarin þrjú ár.
Það gleður okkur að tilkynna að Karl Friðleifur Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir út árið 2026
Karl er mikilvægur hluti liðsins sem varð Íslandsmeistari árin 2021/2023, Bikarmeistari 2021/2022/2023 og Meistarar Meistaranna 2022/2024https://t.co/Rumev3ukfW pic.twitter.com/8ihLYClETh
— Víkingur (@vikingurfc) April 15, 2024