fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Hjálpaði að Heimir hafi elt handboltalandsliðið – „Hvað er ég búinn að koma mér út í?“

433
Laugardaginn 9. mars 2024 07:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Henry Finnbogason var gestur Íþróttavikunnar sem kemur út alla föstudaga. Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson hafa umsjón með þættinum.

video
play-sharp-fill
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér :

Einnig er hægt að hlusta á Spotify eða hlaðvarpsþjónustu Google

Kjartan lagði skóna á hilluna í haust eftir glæstan feril hér heima og erlendis. Tók hann við sem aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar hjá FH.

„Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt. Þetta er auðvitað stórt skref, að taka þá ákvörðun að hætta að spila og líkamlega hefði ég alveg getað haldið áfram en þegar svona tækifæri koma upp þá er gott að fá einhvern annan til að taka svona ákvörðun fyrir sig. Ég er hrikalega ánægður og stoltur að fá að vera í svona starfi hjá svona stórum og flottum klúbi,“ segir Kjartan um nýja starfið.

„Ég var ekki að mikla þetta neitt fyrir mér. Ég var ekki að hugsa um að leikurinn á móti KR í haust væri minn síðasti leikur. Það var ekki neitt svoleiðis drama.“

Kjartan segir frábært að starfa með Heimi.

„Hann er auðvitað algjör goðsögn og mjög sigursæll þjálfari. En hann er tilbúinn til að hlusta og ég finn það að okkar samband er að verða betra og betra.

Fyrstu dagana hugsaði ég: Hvað er ég búin að koma mér út í? En blessunarlega fór Heimir á þetta handboltamót í Munchen svo ég var einn með strákana í átta daga og þurfti aðeins að finna mig, hugsa virkilega mikið og undirbúa mig vel. Ég held það hafi gert mér rosalega gott.“

Umræðan í heild er hér að neðan.

Íþróttavikan er í boði Bola léttöl og Lengjunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
Hide picture