fbpx
Laugardagur 24.maí 2025
433Sport

Skólastjóri Verslunarskóla Íslands styður Vigni – „Hefur óteljandi kosti sem munu nýtast honum í embætti“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 16. febrúar 2024 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verslunarskóla Íslands og fyrrum varaformaður KSÍ lýsir yfir stuðningi við Vigni Má Þormóðsson í framboði til formanns KSÍ. Fótbolti.net segir frá þessu.

Vignir er að berjast um stólinn við Guðna Bergsson og Þorvald Örlygsson en 147 fulltrúar kjósa til formanns eftir átta daga.

Guðrún Inga var lengi vel í stjórnunarstörfum hjá KSÍ og fer fögrum orðum um Vigni sem sat í tólf ár í stjórn KSÍ en hætti árið 2019.

„Eftir viku er ársþing KSÍ, en þar mun knattspyrnuhreyfingin kjósa sér nýjan formann. Í framboði til formanns er góður vinur minn, Vignir Þormóðsson. Við Vignir sátum saman í stjórn KSÍ frá 2007 til 2019 eða í tólf ár. Ég þekki því vel hans störf og veit hvaða sýn hann hefur á íslenska knattspyrnu. Samvinna og samstaða er það sem Vignir hefur ávallt haft að leiðarljósi í störfum sínum. Hann hefur óteljandi kosti sem munu nýtast honum í embætti formanns KSÍ hljóti hann kosningu. Hann er fyrrum formaður knattspyrnudeildar og veit hvaða áskoranir aðildarfélög KSÍ glíma við,“ skrifar Guðrún Inga og Fótbolt.net segir frá.

„Vignir hefur setið í ýmsum nefndum fyrir knattspyrnusambandið og m.a. í mótnefnd KSÍ síðan 2017, þar sem hann gegndi forystu fyrstu tvö árin, og þá hefur hann víðtæka þekkingu á verkefnum KSÍ, innanlands sem og erlendis. En umfram allt er Vignir dýrmætur sjálfboðaliði úr knattspyrnuhreyfingunni sem hefur unnið fyrir félagið sitt og fótboltann frá unga aldri. Hann hefur yfir þrjátíu ára reynslu af fyrirtækjarekstri, sem að mínu mati er mikill kostur fyrir þau fjölmörgu krefjandi mál sem bíða nýs formanns og stjórnar KSÍ.“

„Ég vona að aðildarfélögin kjósi reynslu og þekkingu þegar gengið verður til kosninga laugardaginn 24. febrúar. Þangað til held ég áfram hvetja vin minn áfram til dáða því ég veit að hann er frábær kostur í embætti formanns KSÍ. Svo skemmir ekki fyrir hvað hann er skemmtilegur og frábær félagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ungi Spánverjinn að gefast upp eftir tvö ár í Sádí Arabíu

Ungi Spánverjinn að gefast upp eftir tvö ár í Sádí Arabíu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arne Slot biðlar til stuðningsmanna Liverpool fyrir sunnudaginn

Arne Slot biðlar til stuðningsmanna Liverpool fyrir sunnudaginn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Karlmaðurinn með stóru brjóstin er stoltur eftir að hafa öðlast frægð og frama á dögunum

Karlmaðurinn með stóru brjóstin er stoltur eftir að hafa öðlast frægð og frama á dögunum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segja alla leikmenn United til sölu – Þetta er markaðsvirði þeirra

Segja alla leikmenn United til sölu – Þetta er markaðsvirði þeirra
433Sport
Í gær

Umboðsmaður Bruno Fernandes með færslu sem vekur athygli – „Þú átt meira skilið“

Umboðsmaður Bruno Fernandes með færslu sem vekur athygli – „Þú átt meira skilið“
433Sport
Í gær

Reynir að halda í 700 milljón króna húsið sitt eftir harkalegt gjaldþrot

Reynir að halda í 700 milljón króna húsið sitt eftir harkalegt gjaldþrot