Norðmaðurinn Sander Berge er að verða liðsfélagi Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley.
Berge er 25 ára gamall og er á leið til Burnley frá Sheffield United. Bæði lið eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.
Norski miðjumaðurinn á aðeins ár eftir af samningi sínum við Sheffield United og ætlar ekki að framlengja.
Hann verður því seldur og greiðir Burnley um 12 milljónir punda fyrir þjónustu hans.
Berge gekk í raðir Sheffield United frá Genk í janúar 2020 og hefur því spilað með liðinu í efstu og næstefstu deild.