fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
433Sport

Fóru yfir mál Alberts á Bylgjunni í morgun – „Ég man ekki eftir að landsliðsmaður hafi gert þessa kröfu“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 17. mars 2023 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, segir að Albert Guðmundsson hafi ekki verið til í að koma inn í landsliðshópinn eftir að honum var tjáð að hann yrði ekki í byrjunarliði í komandi landsleik gegn Bosníu og Hersegóvínu.

Þetta kom fram á fréttamannafundi landsliðsins í gær en Albert er ekki í hópnum en undanfarið hefur Arnar ekki valið hann út af hugarfari leikmannsins.

Segja má að þetta mál hafi tekið yfir alla umræðu í kringum landsliðið síðustu daga en málið var rætt í fréttum vikunnar á Bylgjunni í morgun.

„Mér finnst í gegnum árin, þá kemur alltaf upp umræða um svona. Einhver einn leikmaður sem fer í þessa umræðu,“ sagði Rúnar Róbertsson sem var gestur hjá Heimi Karlssyni og Gulla Byggir.

Fjölskylda Alberts segir að hann hafi kosið að vera með fjölskyldu sinni og nýfæddu barni frekar en að fara í verkefnið.

„Það kom meira frá hans hlið og Arnar svaraði því og sagði að Albert vildi ekki vera í hópnum nema í byrjunarliði.

Heimir Karlsson sem lék sem atvinnumaður í knattspyrnu og lék þrjá A-landsleiki á ferli sínum hafði þetta að segja um málið. „Ég man ekki eftir að landsliðsmaður hefi gert þessa kröfu, maður setur þann fyrirvara á að þetta sér rétt,“ sagði Heimir.

Heimir hélt svo áfram og sagði. „Ef það er rétt að hann hafi gert kröfu um þetta, þá er það sérstakt.“

Íslenska karlalandsliðið mætir Bosníu og Liechtenstein síðar í mánuðinum í undankeppni EM 2024

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Delap nálgast ákvörðun

Delap nálgast ákvörðun
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United stórhuga fyrir sumarið – Leikurinn gegn Tottenham skiptir gríðarlegu máli

United stórhuga fyrir sumarið – Leikurinn gegn Tottenham skiptir gríðarlegu máli
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Verður líklega sá dýrasti í sögunni ef hann fer

Verður líklega sá dýrasti í sögunni ef hann fer
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sjáðu hvað liðsfélagi Trent gerði eftir að stuðningsmenn Liverpool bauluðu á hann í gær

Sjáðu hvað liðsfélagi Trent gerði eftir að stuðningsmenn Liverpool bauluðu á hann í gær
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Everton gerði sér vonir en Inter hafði betur

Everton gerði sér vonir en Inter hafði betur
433Sport
Í gær

Velur Noble frekar en Fabregas

Velur Noble frekar en Fabregas
433Sport
Í gær

Beckham opnar sig – Segist sjá mikið eftir þessari ákvörðun

Beckham opnar sig – Segist sjá mikið eftir þessari ákvörðun
433Sport
Í gær

Besta deildin: Aron hetjan á Akureyri

Besta deildin: Aron hetjan á Akureyri