fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Heimsfrægur maður líklega í miklum vandræðum á ný – Afhjúpar skilaboð þeirra á milli þar sem hann heimtaði nektarmyndir

433
Þriðjudaginn 28. nóvember 2023 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

OnlyFans stjarnan Aline Farias er áberandi í brasilískum fjölmiðlum þessa stundina en hún segir stjórstjörnuna Neymar hafa beðið sig um nektarmyndir.

Farias hefur birt skjáskot máli sínu til stuðnings en málið er víða í erlendum miðlum.

„Eru einhverjar nektarmyndir,“ spurði Neymar hana og benti hún honum á OnlyFans reikning sinn.

Neymar og Bruna Biancardi, kærasta hans.

„Hvar? Mig langar til þess að sjá þær,“ spurði Neymar og sendi Farias honum hlekk og skrifaði: „En þú þarft að segja mér hvað þér finnst svo.“

Neymar sendi henni síðar eldmerki (e. flame emoji) og líkaði því greinilega það sem hann sá.

Neymar og kærasta hans Bruna Biancardi eru nýbúin að eignast barn saman en þetta er þó í annað skiptið á stuttum tíma sem hann kemst í fréttir fyrir samskipti við aðra konu en hann var með 22 ára gömlu leikkonunni Nathalia Morais í teyti sem hann hélt á dögunum.

Hinn 35 ára gamli Neymar er á mála hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu en hann spilar ekkert næstu mánuðina þar sem hann er með slitið krossband.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims

Ungur leikmaður Tottenham á óskalista tveggja af stærstu félögum heims
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur