fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Eiður Smári og Jóhannes Karl teikna upp svarta mynd af stöðunni – „Mikið meira að en við nokkurn tímann áttum okkur á“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 30. október 2023 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tapaði sannfærandi fyrir nágrönnum sínum í Manchester City í gær, 0-3. Liðið er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir slaka byrjun lítið útlit fyrir að gengið batni.

„Ég held það sé mikið meira að hjá þessu félagi en við nokkurn tímann áttum okkur á,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari um gengi United í Vellinum á Símanum Sport í gær.

„Viljaleysið til að taka á þessum City-mönnum. Þetta er gríðarlegur nágrannaslagur og það er enginn vilji.“

Eiður Smári Guðjohnsen var með honum í setti og telur hann að stjóri United, Erik ten Hag, hefði átt að taka fleiri sénsa í leiknum í gær.

„Hann sér hvernig leikur er að þróast, bættu framherja við. Ekki taka hann út af. Þó svo að Hojlund hafi ekki átt frábæran leik taktu þá smá séns. Þú hefur engu að tapa lengur.“

Úr leiknum í gær. Getty Images

Jóhannes taldi United á réttri leið í byrjun árs en botnar ekki í hvar allt saman fór úrskeiðis.

„Þetta er eiginlega bara ótrúlegt. Það er í janúar á þessu ári sem þeir vinna City. Maður hafði mikla trú á Ten Hag inn í þetta verkefni. Það var kominn agi og ágætis heildarholning á liðið. Þeir voru að spila ágætis fótbolta, gátu varist djúpt og pressað. Maður skilur ekki hvernig þeir hafa náð að klúðra þessu. 

Þessir leikmenn sem þeir fengu hafa ekki gert neitt til að lyfta þessu á hærra plan. Þeir hafa frekar dregið niður standardinn ef eitthvað. Það eru allt of margir leikmenn í þessu liði sem hafa ekki lappir til að hlaupa á einhverri úrvalsdeildarákefð.“

Eiður segir að óvissa á bak við tjöldin heilli ekki, en eignarhald United hefur verið í brennidepli.

„Svo vitum við ekkert hvað er að gerast á bak við tjöldin. Hver er að kaupa hvaða hlut eða stjórna hverju. Ég held að Glazer fjölskyldan sé ekki sú vinsælasta í Manchester þessa dagana. Þannig það er bara rótleysi á öllu og það færir sig inn á völlinn,“ sagði Eiður, en hann og Jóhannes eru sammála um að Ten Hag verði ekki mikið lengur í starfi knattspyrnustjóra Manchester United.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Flytur frá Manchester til Norwich

Flytur frá Manchester til Norwich
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

ÍBV henti KR úr bikarnum – Mosfellingar og Keflvíkingar áfram

ÍBV henti KR úr bikarnum – Mosfellingar og Keflvíkingar áfram
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þrír miðverðir United mættu ekki á æfingu í dag

Þrír miðverðir United mættu ekki á æfingu í dag