fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Fleiri sögur berast eftir stormasama daga í Kópavogi: Kristján fullyrðir að Óskar og Ólafur hafi ekki talast við frá því í vor – „Það mætti segja að það hafi verið brenna frá því í apríl“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 9. október 2023 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil umræða hefur skapast í kjölfar þess að Breiðablik lét Óskar Hrafn Þorvaldsson víkja úr starfi í gær. Ljóst er að mikil kergja hefur verið á bak við tjöldin.

Óskar Hrafn lét af störfum sem þjálfari Breiðabliks eftir tap gegn Stjörnunni í gær. Óskar hafði látið stjórnina vita að hann vildi hætta með liðið í desember en stjórnin vildi að hann myndi hætta strax með liðið. Eins og áður hefur komið fram er Óskar talinn afar ósáttur við þessa ákvörðun stjórnar. Vildi hann fá að stýra liðinu út riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

„Maður er búinn að heyra ýmislegt og allt of mikið í allt sumar. Að það gusti um allt í Smáranum þrátt fyrir þessa velgengni í Evrópu. Það er nú haldin brenna á Gamlárskvöld í Smárahverfi en það mætti segja að það hafi verið brenna frá því í apríl og þar til mótið kláraðist,“ sagði sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni í dag.

Rifjaði hann upp þegar Ólafi Kristjánssyni var sagt upp sem yfirmanni knattspyrnumála hjá Breiðabliki á miðju tímabili í sumar. Eiga hann og Óskar ekki að hafa talast við allt tímabilið.

„Ólafur Kristjánsson og þjálfarinn Óskar Hrafn Þorvaldsson töluðust ekki við frá því mótið byrjaði og þar til það var búið. Það að stjórnin komi ekki inn í og leysi þessa deilu er náttúrulega bara galið og stjórnin verður að svara fyrir það. Það vissu þetta allir.“

Kristján segir að þetta hafi ekki átt að fá að viðgangast.

„Yfirmaður knattspyrnumála og þjálfarinn töluðust ekki við. Það er bara ekki eðlilegt. Þar verður einhver að stíga inn í og taka ábyrgð.“

433.is greindi frá því fyrr í dag að leikmenn, starfsmenn og stjórnarmenn Breiðabliks hafi farið út að borða saman í gær og að þar hafi kastast í kekki á milli manna. Endaði það með því að Óskar Hrafn og eiginkona hans Laufey Kristjánsdóttir yfirgáfu staðinn með nokkrum látum samkvæmt heimildum 433.is.

Nánar
Formaðurinn neitar bæði að ræða uppsögn Óskars og uppákomu sem átti sér stað í kvöldverði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“

Gat ekki orða bundist eftir ógeðfellda hegðun stuðningsmanna Stjörnunnar – „Og börnin syngja með“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gæti tekið áhugavert skref út fyrir landsteinana í sumar

Gæti tekið áhugavert skref út fyrir landsteinana í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Alonso setur það í forgang að styrkja þessar tvær stöður hjá Real Madrid

Alonso setur það í forgang að styrkja þessar tvær stöður hjá Real Madrid
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“
433Sport
Í gær

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum
433Sport
Í gær

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist