fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Bæjarstjórinn bregst við gagnrýni knattspyrnufólks – „Aðstaðan mun batna en því miður er ekki mögulegt að gera allt strax

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. september 2023 16:00

Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, segir að bæjaryfirvöldum sé fullkunnugt um að aðstaðan á Vivaldi-velli Gróttu sé ófullnægjandi og að gervigrasið á vellinum sé komið á tíma. Vilji bæjarstjórnar standi til þess að bæta úr þessu en að forgangsraða þurfi fjármunum og því verði einhver töf á því að ráðist verði í framkvæmdir.

„Við erum að reka bæjarfélag þar sem grunnþjónustan er í algjörlega í forgangi. Við stöndum í stórræðum þessa dagana með viðgerðir á skólahúsnæði. Við erum að fara að byggja leikskóla svo dæmi séu tekin. Við vildum sannarlega geta gert allt saman á sama tíma en við verðum einfaldlega að forgangsraða verkefnum,“ skrifar Þór í umræðum á íbúahópi Seltirninga.

Eins og 433 greindi frá fyrr í dag hafa nokkrir leikmenn knattspyrnudeildar Gróttu sent bæjaryfirvöldum opið bréf þar sem bent er á slæma aðstöðu á Vivaldi-velli félagsins og þá sér í lagi alvarlegt ástand gervigrassins sem er orðið sjö ára gamalt og orðið beinlínis hættulegt. Tveir leikmenn hafa slitið krossbönd á vellinum í ár og grasið er sagt hafa misst rétta lögun sína og það sé þurrt þegar ekki rignir af því að vökvunarbúnaður er ekki til staðar.

„Við sem æfum þarna dag­lega telj­um að það hefði átt að end­ur­nýja grasið árið 2021 eða 2022. Nú er 2023 komið langt á leið og það sem við heyr­um er að það komi ekki nýtt gras fyrr en KANNSKI árið 2025. Það slitnuðu tvö kross­bönd á vell­in­um í byrj­un tíma­bils 2022 og er tímaspurs­mál hvenær sam­bæri­leg meiðsli munu líta dags­ins ljós af völd­um gervi­grass­ins. Það tek­ur um 12 mánuði að jafna sig á kross­bands­slit­um. Það ætti að gera allt til að fyr­ir­byggja svona al­var­leg meiðsli. Bráðefni­leg­ir ung­ir leik­menn spila í báðum meist­ara­flokk­um Gróttu og að bjóða þeim upp á svona lé­leg­an völl hjálp­ar fram­förum þeirra ekki,“ skrifuðu leikmennirnir.

Sjá einnig: Senda opið bréf til bæjaryfirvalda – „Við ósk­um eft­ir svör­um“

Aðstaðan mun batna en ekki strax

Þá sé Vallarhúsið sjálft löngu sprungið og sjá megi iðkendur skipta um föt og skó fyrir utan húsið eða á göngum þess þá daga sem leikir eru í gangi.

„Þetta er alls ekki Gróttu sæm­andi og þarf að finna lausn­ir á þess­um vanda strax og grípa til aðgerða áður en það verður ein­fald­lega um sein­an,“ skrifuðu leikmennirnir og kölluðu eftir svörum.

Talsverð umræða skapaðist um bréf leikmannanna í íbúahóp bæjarins og þar steig Þór bæjarstjóri fram og lýsti áætlunum meirihlutans.

„Við erum með í okkar verkplönum að endurnýja gervigrasið 2025 – þetta hefur komið fram á fundi með stjórn knattspyrnudeildar Gróttu. Við erum einnig að skoðta að breyta tækjageymslu í búningsklefa og færa geymsluna suður fyrir stúkuna og grafa hana þar inn í brekkuna. Við erum ekki að fara að byggja yfir litla völlinn að sinni. Við væntum samtarfs við KR þegar og ef knatthús rís. Þeir hafa boðið tíma þar. Það er glatað að einhver sé að klæða sig úti og meiðsli eru alltaf skelfileg,“ skrifaði Þór.

Sagði hann að bæjarfulltrúa standa þétt við félagið og vilja því allt hið besta.

„Aðstaðan mun batna en því miður er ekki mögulegt að gera allt strax,“ skrifaði Þór.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag

Myndband: Núverandi og fyrrverandi leikmenn Liverpool mættir til Portúgal – Jarðarförin er í dag
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Grétu er þeir minntust Jota og bróður hans

Grétu er þeir minntust Jota og bróður hans
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Margrét Lára reyndist sannspá með leikinn gegn Finnum

Margrét Lára reyndist sannspá með leikinn gegn Finnum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Höfðu komið upp reglulega öryggisgallar í bílnum sem Jota og bróðir hans voru á

Höfðu komið upp reglulega öryggisgallar í bílnum sem Jota og bróðir hans voru á
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Jörundur Áki fór yfir sviðið á liðshóteli Íslands – Hlustaðu á þáttinn hér

Jörundur Áki fór yfir sviðið á liðshóteli Íslands – Hlustaðu á þáttinn hér
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Íslendingar taka upp venjur heimamanna – Hægt að fara afar nýstárlega leið á næsta leik landsliðsins

Íslendingar taka upp venjur heimamanna – Hægt að fara afar nýstárlega leið á næsta leik landsliðsins
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þorsteinn sammála dómnum umtalaða

Þorsteinn sammála dómnum umtalaða