fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Sjúkraþjálfari varpar sprengju í nýrri bók: Fór í trekant með heimsfrægum knattspyrnumönnum – „Þú ert svo falleg, mig langar að sjá þig nakta“

433
Miðvikudaginn 30. ágúst 2023 07:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í bók sem ónefndur sjúkraþjálfari gefur út um helgina kemur fram að hún hafi stundað kynlíf með fjölda þekktra manna sem hafa verið í sjúkraþjálfun hjá henni í gegnum tíðina. Þar á meðal eru frægir knattspyrnumenn á Englandi.

Enskir miðlar fjalla um bókina í dag, en höfundurinn kemur ekki fram undir nafni og nafngreinir hún heldur ekki þá leikmenn sem hún hefur sofið hjá.

Í einum kafla bókarinnar lýsir hún því þegar vel þekktur knattspyrnumaður á Englandi var á stofunni hjá henni. Hún segir að tíminn hafi farið eðlilega af stað en svo hafi leikmaðurinn farið að reyna við hana.

„Ertu í nærfötum undir vinnuklæðnaðinum?“ á hann til að mynda að hafa spurt. „Þú ert svo falleg, mig langar að sjá þig nakta,“ sagði hann einnig.

Svo á leikmaðurinn að hafa spurt hvort hann mætti snerta á henni fótinn og hún leyfði það.

„Hann færði höndina ofar og ofar, þar til hann snerti nærfötin mín,“ skrifar hún í bókina.

Þau stunduðu svo kynlíf en þessu var ekki lokið þarna. „Annar fótboltamaður, ekki minna frægur, gekk svo inn og við fórum í trekant.“

Sjúkraþjálfarinn segist einnig hafa sofið hjá stjörnum úr tennis og ruðningi svo dæmi séu nefnd. Nokkrir þeirra hafa haft samband við hana undanfarið og grátbeðið hana um að greina ekki frá nöfnum þeirra.

„Ég sagði þeim að ég myndi aldrei gera það, nöfn þeirra fara með mér í gröfina,“ segir hún í nýju viðtali.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd

Manchester City opinberar nýjar treyjur – Mynd
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar

Forráðamenn Arsenal óvissir í hvaða átt þeir eiga að fara í sumar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Beckham og Neville henda 17 leikmönnum burt

Beckham og Neville henda 17 leikmönnum burt
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum

Staðfest að Amorim verður ekki rekinn sama hvað gerist í næstu leikjum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist