fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Peningar ekki það sem Gylfi hugsar út í – „Snýst um það hvar þú ert sem persóna eftir svona hluti sem þú ferð í gegnum“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 28. ágúst 2023 17:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicas Kjeldsen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Lyngby segir Gylfa Þór Sigurðsson ekki vera á eftir peningum nú þegar hann ræðir við félagið um að semja við það.

Danska félagið vill semja við Gylfa Þór en hann hefur heimsótt félagið í Kaupmannahöfn.

„Við teljum að þetta líti vel út, það er enginn samningur en við vonumst til að það klárist,“ segir Kjeldsen.

Kjeldsen segir að peningar séu ekki það sem Gylfi Þór sé að eltast við á þessum tímapunkti.

„Peningar eru ekki það eru að drífa hann áfram, hann vill koma ferli sínum af stað aftur og sýna heiminum að hann sé enn góður leikmaður.“

Kjeldsen segist hafa rætt þá staðreynd við Gylfa að hann hafi ekki spilað fótbolta í tvö ár vegna rannsóknar lögreglunnar í Englandi á meintu broti hans. Málið var fellt niður eftir tæp tvö ár í rannsókn.

„Þetta snýst um það hvar þú ert sem persóna eftir svona hluti sem þú ferð í gegnum, við höfum rætt það ítrekað. Við teljum að hann sé maður sem vill sanna ágæti sitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn