fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
433Sport

Skrifar opið bréf til Vöndu og vonast eftir svari – „Þessi stefna og reglugerð er sem rýtingur í brjóst okkar stelpna“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 25. ágúst 2023 08:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Friðjón Árni Sigurvinsson, þjálfari 4.fl kvk hjá KF/Dalvík skrifar opið bréf til Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanns KSÍ þar sem hann hefur ekki fengið svör frá henni síðustu ár.

Friðjón segist hafa reynt að ná formann sambandsins í síma og í gegnum tölvupóst en telur hana upptekin við önnur mál. Mál Friðjóns varðar reglur KSÍ sem nú vinna gegn KF/Dalvík.

„Opið bréf til formanns KSÍ þar sem hún er upptekinn við önnur mál þessa dagana en að svara 4.flokks þjálfara út á landi hvorki í síma nè tölvupóst þá ætla ég að láta á þetta reyna hér,“ skrifar Friðjón á Facebook síðu sinni.

Friðjón segist hafa skráð lið KF/Dalvíkur í flokk B-liða svo stelpurnar fengu verkefni við hæfi. Nú þegar liðið er komið í úrslitakeppni má það hins vegar ekki taka þátt.

„Þannig er mál með vexti að ég er þjálfari 4.fl kvk hjá KF/Dalvík og við skráðum eitt lið í Íslandsmót í sumar. Liðið var skráð sem B-lið þar sem getubilið er mikið í liðinu og fjöldinn ekki mikill hjá okkur í 4. flokki kvenna. Einnig vildum að þær fengu verkefni við hæfi. Liðið kom svo öllum á óvart og er búið að vera frábært í sumar og vann sinn riðill á Íslandsmótinu. Við fáum svo þau skilaboð að vegna þess að við erum ekki með lið í A-liða keppni fær liðið ekki að taka þátt í úrslitakeppninni sem stelpurnar stefndu á í allt sumar. Það stendur vissulega í reglugerð hjá KSÍ að þetta sé ekki leyfilegt, þess má geta að ég vissi ekki af þessari reglu fyrr en í fyrradag, mèr finnst hins vegar sú regla og reglugerð barn síns tíma þar sem þarna er verið að útiloka minni félög frá því að eiga séns á glæstum árangri,“ skrifar Friðjón í pistli sínum.

Friðjón telur að þessi regla verði til þess að stærri félög nái árangri en þau minni sitji eftir með sárt ennið. „Með þessu má ætla að það sé yfirlýst stefna að stærri félögin eigi ein að eiga möguleika á því að verða Íslandsmeistarar. Er eðlilegt að einungis lið frá Breiðablik, Stjörnunni/Álftanes, FH/ÍH, KA eða öðrum fjölmennum félögum geti hampað Íslandsmeistaratitlum? Og að fjöldi iðkenda hafi þar úrslitaáhrif? Er KSÍ virkilega endanlega orðið að höfuðborgarsamtökum sem skeytir lítið um félögin úti á landi sem eru að berjast í því að halda úti liðum í öllum flokkum af báðum kynjum og finnst eðlilegast að félögin sem eru með flesta iðkendur standi framar öðrum? Er það í anda KSÍ að fámennum liðum eins og KF/Dalvík og fleirum sé gert það ómögulegt að sigra og ná eftirminnilegum árangri og uppskera eftir erfiði vinnu sinnar?.“

Friðjón segir að reglan geri lítið úr þeim metnaði sem er í knattspyrnu kvenna.

„Þessi stefna og reglugerð er sem rýtingur í brjóst okkar stelpna og gerir lítið úr þeirri metnaðarfullu uppbyggingu sem á sér nú stað í kvennaboltanum hér út með Eyjafirði. KSÍ þarf að gera betur svo fólk í minni byggðum á landsbyggðinni trúi því að allir eigi möguleika á því að sigra. Það er nógu erfitt að halda stelpum á þessum aldri inn í fótbolta í þessum litlu sveitarfélögum hvað þá þegar þær fá svona skell að öll vinnan og markmiðum sé sópað út af borðinu út af úreltri reglugerð hjá KSÍ. Ég velti fyrir mér til hvers við séum þá yfir höfuð að taka þátt í Íslandsmótinu ef við eigum svo ekki möguleika á árangri? Það gjaldfellir líka algjörlega mótið ef lið sem endar í 4.-8. sæti í riðli, fær sæti í úrslitakeppni bara af því að það er A-lið frá þeim í keppni. Að sama skapi get ég ekki ímyndað mér að það sé einhver vilji frá þeim félögum til að taka þátt í svoleiðis leik, að leika í úrslitakeppni án þess að hafa náð árangri. Það er ekki í anda keppnisíþrótta.“

Hann segir reglurnar í kringum mótin svo ekki standast neina skoðun og bendir á þetta. „Í sömu reglugerð er minnst á að Íslandsmótið eigi að vera svæðisskipt og svo sé úrslitakeppni á milli svæða. Þessi reglugerð er mölbrotin og algerlega virt af vettugi. Við höfum farið í 7 útileiki í 5 ferðum og keyrt um 900 km í hvert skipti. Við höfum þrisvar farið til Reykjavíkur, einu sinni á Reykjanesið og í eitt skipti á Hvolsvöll. Ég veit ekki hvernig KSÍ sér landshlutana en þessir landshlutar eru svo sannarlega ekki á okkar svæði. Kostnaður við þessi ferðalög er líka gríðarlegur og veltur í heildina á milljónum sem stelpurnar hafa unnið hörðum höndum að safna fyrir. Það er mjög skrýtið að fara eftir einni reglu í reglugerðinni en hunsa svo aðra bara eftir hentisemi KSÍ. Við hefðum jafnvel skipulagt sumarið með allt öðrum hætti hefðum við vitað af þessari reglu og velt fyrir okkur hvort fjármunum væri ekki verið betur varið við keppni nærri heimahögunum og á móti erlendis eða eitthvað sambærilegt.

Ég hafði samband við mótastjóra KSÍ sem sagði mér að rökin fyrir þessari reglu væru augljós. Ég er greinilega ekki þannig þenkjandi því rökin eru alls ekki augljós í mínum huga því ekki skrái ég lið með það að markmiði að rústa mótinu. Það græðir enginn neitt á því, allra síst leikmenn sem ég þjálfa og kenni að bera virðingu fyrir sanngirni og heilindum innan vallar sem utan. Ég trúi því heldur ekki að mótastjóri geti ekki metið hvert tilfelli fyrir sig í stað þess að skýla sér á bak við regluverk. Þetta tilfelli, sem er 4. fl. lið KF/Dalvíkur er vonandi þannig vaxið að hægt sé að meta okkur í hag.“

Hann segir stelpurnar þrá jákvætt svar frá sambandinu en hann segir það sárt að vera meinuð þáttaka. „Leikmenn 4. fl. KF/Dalvíkur þrá að fá jákvætt svar við þessu bréfi, sem og annað knattspyrnufólk úr fámennum félögum sem heldur kannski enn að lið þeirra geti unnið titla séu liðin nógu góð. Er möguleiki að stelpurnar fái að taka þátt í úrslitakeppni eins og þær eiga skilið og hafa unnið sér inn? Ef það er ekki mögulegt velti ég því upp hvort KSÍ ætli að greiða ferðakostnaðinn fyrir okkur þar sem KSÍ braut reglugerðina um svæðaskiptinguna vísvitandi?

Ef stelpurnar fá að taka þátt í úrslitakeppni og falla úr leik í fyrstu umferð er það hluti af leiknum, en að vera meinuð þátttaka út af reglugerð er eitthvað sem er ómögulegt að útskýra fyrir þeim. Ég veit allavegana að þær eru niðurbrotnar og vonsviknar nú þegar. Hver sem niðurstaðan verður mun ég þjálfari liðsins og aðrir aðstandendur gera allt sem í okkar valdi stendur að hvetja þær til dáða og gæta þess að fótboltaáhugi þeirra og sjálfstraust bíði ekki hnekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Geta gleymt því að fá hann frá Real Madrid í janúar

Geta gleymt því að fá hann frá Real Madrid í janúar
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Barcelona hefur áhuga á að kaupa Rashford

Barcelona hefur áhuga á að kaupa Rashford
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mögnuð innkoma Sveindísar af bekknum – Ferna á rúmum tuttugu mínútum í Meistaradeildinni

Mögnuð innkoma Sveindísar af bekknum – Ferna á rúmum tuttugu mínútum í Meistaradeildinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

KR-ingar kveðja Benóný sem skrifaði undir í Manchester í dag

KR-ingar kveðja Benóný sem skrifaði undir í Manchester í dag
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sigur á morgun myndi gulltryggja það að Víkingur myndi skrifa söguna

Sigur á morgun myndi gulltryggja það að Víkingur myndi skrifa söguna
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United fer mikinn í viðtali – Segir eðlilegt að Palmer mæti á Old Trafford

Fyrrum leikmaður United fer mikinn í viðtali – Segir eðlilegt að Palmer mæti á Old Trafford
433Sport
Í gær

Mourinho aftur í ensku úrvalsdeildina?

Mourinho aftur í ensku úrvalsdeildina?
433Sport
Í gær

Ronaldo opinberar hvert hans nýja verkefni er

Ronaldo opinberar hvert hans nýja verkefni er