fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Opinbera hvað gerðist á milli Guardiola og Foden – ,,Aldrei tala við mig svona aftur“

Victor Pálsson
Laugardaginn 12. ágúst 2023 20:55

Guardiola / Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

The Telegraph hefur birt ansi athyglisverða grein þar sem fjallað er um samband Pep Guardiola og Phil Foden.

Foden er ein skærasta stjarna Englands en hefur samt sem áður ekki alltaf átt fast sæti í liði Man City né enska landsliðinu.

Það er þó ekki hægt að neita hæfileikum leikmannsins en hann er enn efnilegur og aðeins 23 ára gamall.

Telegraph birtir samskipti á milli Guardiola og Foden í leik gegn Porto í Meistaradeildinni á sínum tíma þar sem sá spænski áttaði sig á því að hann gæti treyst Foden fyrir hlutverki í aðalliðinu.

,,Andskotinn Phil, andskotinn hafi það. Þú gerðir alls ekki það sem ég bað um,“ öskraði Guardiola á Foden sem tók aukaspyrnu í leiknum en á sinn eigin hátt.

Eftir leik þá svaraði Foden fyrir sig fullum hálsi og var ekki ánægður með framkomu þjálfara síns að sögn Telegraph.

,,Aldrei tala svona við mig aftur. Þú myndir ekki koma svona fram við aðra leikmenn,“ á Foden að hafa sagt.

Greint er frá því að Guardiola hafi degi seinna beðist afsökunar á hegðun sinni en atvikið átti sér stað fyrir um þremur árum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“

Allt vitlaust í kringum Íslendingaliðið eftir gærdaginn – „Höfum haft hausinn uppi í rassgatinu á okkur“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af