fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Alfons um markið: ,,Það eru menn þarna fyrir innan sem hafa áhrif á leikinn“

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 20. júní 2023 21:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið tapaði á grátlegan hátt gegn Portúgal í kvöld í undankeppni EM.

Leikið var á Laugardalsvelli en Ísland var að tapa sínum öðrum leik á stuttum tíma eftir tap gegn Slóvakíu um helgina.

Eitt mark var skorað í leik kvöldsins en það gerði enginn annar en Cristiano Ronaldo fyrir Portúgal.

Markið var skorað í uppbótartíma og var um afskaplega grátlegt tap að ræða. Ísland kláraði leikinn einnig manni færri eftir rauða spjald Willums Þórs Willumssonar er níu mínútur voru eftir.

Alfons Sampsted, hægri bakvörður Íslands, ræddi við blaðamenn eftir leik.

,,Eins og þú segir, svekkjandi. Það má segja það sem maður vill um þetta mark, ég er búinn að sjá þetta einu sinni aftur og það er matsatriði hvort þetta sé rangstaða eða ekki. Sá sem fær boltann er ekki rangstæður en það eru menn þarna fyrir innan sem hafa áhrif á leikinn,“ sagði Alfons.

,,Ég hugsa að mjög margir í stúkunni séu sammála um það að liðið er á leið í frekar góða átt akkúrat núna þannig við getum byggt ofan á þetta fyrir næsta glugga.“

,,Þetta var frekar vel leikgreint hjá þjálfurunum. Þeir voru spenntir að við myndum stíga út úr pressunni án þess að þeir þyrftu að hreyfa boltann en við gerðum lítið af því og opnuðum lítið af glufum fyrir aftan okkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hefur ekki neinn áhuga á því að fara frá Liverpool í sumar

Hefur ekki neinn áhuga á því að fara frá Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe
433Sport
Í gær

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist
433Sport
Í gær

Viðbúið að viðbrögðin yrðu svona og Trent þarf að takast á við það

Viðbúið að viðbrögðin yrðu svona og Trent þarf að takast á við það