fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fór í stríð við heimsfrægan blaðamann í kjölfar ummæla á Twitter: Vildi sjá hann hverfa af yfirborði jarðar – „Kannski biður þú mig um að giftast systur þinni á miðvikudag“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 5. júní 2023 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manuel Ugarte er á leið til Paris Saint-Germain frá Sporting. Miðjumaðurinn hafði verið orðaður við Chelsea einnig en fer ekki þangað.

Þessar fregnir urðu til þess að stuðningsmaður Chelsea og íþróttablaðamaðurinn Fabrizio Romano áttu í orðaskiptum á Twitter.

Stuðningsmaðurinn sem um ræðir hrósaði nefnilega David Ornstein, öðrum íþróttablaðamanni, fyrir að fjalla ekki um það að Ugarte gæti endað hjá Chelsea.

„Sá besti af ástæðu,“ skrifaði hann um Ornstein.

Hann hélt svo áfram og hjólaði í Romano, sem er afar virtur þegar kemur að fréttum um félagaskipti í fótboltanum.

„Ég vil að Fabrizio hverfi af yfirborði jarðar fyrir fullt og allt.“

Romano lét þetta ekki kyrrt liggja. „Þú gætir byrjað á því að hætta að fylgja mér félagi. Það er ágætist fyrsta skref áður en þú óskar þess að ég hverfi af yfirborði jarðar.

Það er gaman að sjá að fyrir þremur dögum bjó ég til besta dag lífs þíns og nú viltu að ég hverfi af yfirborði jarðar. Kannski biður þú mig um að giftast systur þinni á miðvikudag og eyða aðganginum mínum á laugardag,“ skrifaði Romano og vísaði í eldri færslu stuðningsmannsins.

Samskiptin má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna