fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Engu til sparað á Akureyri – Fljúga Norðmönnunum sem eru í prófum heim til að eiga séns í Víking

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 25. maí 2023 08:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KA hefur ákveðið að fljúga Norðmönnunum ungu heim frá Noregi til þess að taka þátt í leiknum gegn Víking í Bestu deild karla í kvöld. Frá þessu er greint í Þungavigtinni.

Kristoffer Forgaard Paulsen og Ingimar Torbjörnsson Stöle komu til KA frá Viking í Noregi fyrir tímabilið. Þeir héldu heim á dögunum til að taka próf í skóla sínum.

Þeir félagar voru ekki með gegn Breiðablik um helgina en vegna meiðsla í vörn KA hefur félagið ákveðið að fljúga þeim til landsins og aftur út svo til að klára prófin.

„Þeir sóttu tvo unga Norðmenn sem hafa staðið sig ágætlega, þeir eru í prófatörn í Noregi,“ sagði Kristján Óli í Þungavigtinni í gærkvöldi.

Hann segir að þeim verði flogið Íslands. „Þeim verður flogið í þennan leik og svo aftur til Noregs. Það segir mest um varnar krísu KA en þeir voru ekkert í hóp gegn Breiðablik, voru bara í Noregi,“ segir Kristján.

Ingimar skrifaði undir þriggja ára samning við KA en Kristoffer kom á láni.

Ingimar sem varð 19 ára á dögunum er spennandi íslenskur kantmaður sem hefur verið viðloðandi yngrilandslið Íslands undanfarin ár og hefur meðal annars leikið tvo leiki með U19 ára landsliðinu. Hann hefur alla tíð búið í Noregi en þó leikið nokkur sumur með liði Fjölnis og þekkir því gula og bláa litinn ansi vel.

Þá skrifaði norski varnarmaðurinn Kristoffer Forgaard Paulsen undir eins árs lánsamning og leikur því með KA í sumar. Kristoffer sem er 19 ára er einnig afar spennandi leikmaður en hann er 192 cm á hæð.

Víkingur hefur unnið alla átta leiki sína í Bestu deildinni til þessa en leikurinn hefst klukkan 18:00 á Akureyri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Iwobi orðaður við stórlið

Iwobi orðaður við stórlið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sandra María: „Við þurfum að vera undirbúnar í það andlega“

Sandra María: „Við þurfum að vera undirbúnar í það andlega“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool frestar því að hefja æfingar til að leikmenn fái tíma til að syrgja

Liverpool frestar því að hefja æfingar til að leikmenn fái tíma til að syrgja
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Höfðu komið upp reglulega öryggisgallar í bílnum sem Jota og bróðir hans voru á

Höfðu komið upp reglulega öryggisgallar í bílnum sem Jota og bróðir hans voru á
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Henderson brast í grát þegar hann mætti fyrir utan Anfield til að votta Jota virðingu sína

Henderson brast í grát þegar hann mætti fyrir utan Anfield til að votta Jota virðingu sína
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Íslendingar taka upp venjur heimamanna – Hægt að fara afar nýstárlega leið á næsta leik landsliðsins

Íslendingar taka upp venjur heimamanna – Hægt að fara afar nýstárlega leið á næsta leik landsliðsins