fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Afar þægilegt fyrir City í stórleiknum – Útlitið orðið ansi gott

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. apríl 2023 20:58

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærsti leikur tímabilsins til þessa í ensku úrvalsdeildinni fór fram í kvöld þegar Manchester City tók á móti Arsenal.

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið leikur kattarins að músinni og yfirburðir City miklir frá upphafi.

Þeir báru árangur strax á 7. mínútu þegar Kevin De Bruyne skoraði með góðu skoti. Erling Braut Haaland fór illa með Rob Holding í aðdragandanum.

Áfram voru heimamenn miklu betri. Skytturnar virtust ætla að sleppa aðeins 1-0 undir í hálfleik en í uppbótartíma fyrri hálfleiks skoraði John Stones með skalla. Markið var upphaflega dæmt af vegna rangstöðu en VAR sýndi að það var gott og gilt.

Eftir innan við tíu mínútur í seinni hálfleik var City búið að gera út um leikinn. Þá skoraði De Bruyne aftur með frábærri afgreiðslu eftir samspil við Haaland.

Eftir þetta þæfði City leikinn niður. Holding tókst þó að klóra í bakkann fyirr Arsenal á 86. mínútu með góðri afgreiðslu í teignum.

Haaland kom sér hins vegar á blað og kom City í þriggja marka forystu á ný í blálok leiksins.

Lokatölur 4-1. Úrslitin þýða að Arsenal er enn á toppi deildarinnar, nú með 2 stiga forskot á City. Þeir síðarnefndu eiga hins vegar tvo leiki til góða og útlitið því gott fyrir þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Eru til í að bjarga honum frá Liverpool

Eru til í að bjarga honum frá Liverpool
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum
Glódís er leikfær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona er landsliðshópurinn – Glódís snýr aftur

Svona er landsliðshópurinn – Glódís snýr aftur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Reyndu að fjárkúga vel þekktan mann – Heimtuðu tugi milljóna

Reyndu að fjárkúga vel þekktan mann – Heimtuðu tugi milljóna
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Flytur frá Manchester til Norwich

Flytur frá Manchester til Norwich
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn 2. deildarliði Kára

Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn 2. deildarliði Kára