
Hinn 75 ára gamli Roy Hodgson hefur náð samkomulagi við forráðamenn Crystal Palace um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins út tímabilið. Frá þessu greinir Fabrizio Romano.
Hodgson, sem hafði sest í helgan stein, tekur við starfinu af Patrick Vieira sem var á dögunum rekinn úr starfi. Hodgson hefur náð samkomulagi við Crystal Palace um kaup og kjör.
Þessi margreyndi knattspyrnustjóri þekkir vel til hjá Crystal Palace. Hann var á sínum tíma á mála hjá félaginu sem leikmaður og á hans langa ferli sem þjálfari og knattspyrnustjóri stýrði hann Crystal Palace á árunum 2017-2021.
Crystal Palace er sem stendur í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig eftir 28 leiki, þremur stigum frá fallsæti.
Crystal Palace have agreed terms with Roy Hodgson — he will return to the club as new head coach to replace Patrick Vieira 🔵🔴🦅 #CPFC
Hodgson will sign until the end of the season. pic.twitter.com/CeoJTCQtuh
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 20, 2023