fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Eiginkonan íhugar framtíð hjónabandsins eftir hneykslið sem skók Bretland – Beraði lim sinn á bar og kyssti aðra konu í vikunni

433
Fimmtudaginn 9. mars 2023 09:35

Walker og Kilner.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiginkona Kyle Walker, Annie Kilner, er bálreið út í hann eftir hans nýjasta athæfi á dögunum. Hún íhugar nú framtíð hjónabandsins.

Walker, sem er leikmaður Manchester City, sást um helgina bera lim sinn á bar og kyssa aðra konu.

Meira
Hneyksli í Bretlandi – Sjáðu myndina þegar gifta stórstjarnan tók lim sinn út á knæpu og kyssti konu

Annie hefur fyrirgefið ýmsilegt í gegnum tíðina, hún tók aftur við honum eftir framhjáhald árið 2019.

Árið 2020 varð fyrirsætan Lauryn Goodmann ófrísk eftir Walker en Annie fyrirgaf það einnig eftir nokkra mánuði.

Á meðan þau voru í sundur hafði Walker leigt sér íbúð og fékk tvær vændiskonur heim til sín þegar útgöngubann var í Bretlandi vegna COVID-19.

Nú er Annie hins vegar bálreið og á að hafa sagt við vini sína að Walker „sé hálfviti.“

The Sun hefur fjallað um málið og heimildamaður blaðsins segir: „Annie vissi hvað hún væri að fara út í þegar hún giftist honum.

Hún er mjög hrædd um að það verði lögreglurannsókn og ef af því verður held ég að hún hætti með honum. Það hefur þó ekki gerst eins og er.“

Heimildamaðurinn segir að Annie vilji passa upp á börn þeirra og að hún hafi áhyggjur af því hvað öðrum finnst. Þá vill hún að Walker leiti ráða vegna drykkju sinnar.

„Hún vill að hann fái ráðgjöf því hann fer alltaf yfir strikið þegar hann drekkur. Hann er yfirleitt rólegur en það fer allt til fjandans þegar hann er drukkinn.“

Annie birti færslu á Instagram eftir að fréttir af athæfum Walker komu fram fyrr í vikunni.

„Það kemur að því að þú verðir að hætta að fara yfir höf fyrir fólk sem myndi ekki hoppa yfir polla fyrir þig,“ sagði í færslunni, sem var þó skömmu síðar eytt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum