Stephen Warnock, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu og núverandi sérfræðingur Sky Sports, furðar sig á ummælum Antonio Conte, knattspyrnustjóra enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham eftir leik liðsins um nýliðna helgi. Warnock segir Conte vera í mótsögn við sjálfan sig og spyr hverju stuðningsmenn félagsins eigi eiginlega að trúa af því sem kemur frá honum.
Viðtal sem Conte fór í, eftir 2-0 tap Tottenham gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær, hefur vakið mikla athygli en í því sagði Conte meðal annars að fjárfesta þyrfti miklum fjármunum í leikmannahóp félagsins ef liðið ætti að endurtaka „kraftaverkið“ og átti Conte þar við árangur Tottenham á síðustu leiktíð þar sem liðið endaði í einu af topp fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar.
Þá sagði Conte að grunnurinn sem félagið væri að byggja á væri ekki góður en sjálfur er hann nú undir mikilli pressu og eru raddir, þess efnis að hleypa þurfi nýjum knattspyrnustjóra að, orðnar háværari.
„Hann segir að grunnurinn sé ekki nógu góður í liðinu og að liðið sé ekki að standast væntingar. Á sama tíma segir hann að hann hafi fulla trú á leikmönnum sínum. Hverju eigum við að trúa?“ segir Warnock í samtali við Sky Sports.
Warnock segist telja að Conte þyki leikmennirnir, sem hann hefur úr að moða, ekki nægilega góðir.
„Hann er að biðja um meiri fjárfestingu, meiri gæði og sagði að árangur síðasta tímabils hefði í raun verið blekking.“
Conte sé bara að finna upp afsakanir til þess að afvegaleiða umræðuna frá því sem skipti máli.
„Allir stuðningsmenn, hvaða liðs sem um ræðir, vilja að meiri fjármunum sé eytt í uppbyggingu en það skiptir öllu máli að peningunum sé vel eytt.“
Tottenham er sem stendur í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 30 stig eftir að hafa spilað 17 leiki.