Ísland gerði í kvöld 2-2 jafntefli gegn Ísrael á útivelli í fyrstu umferð B-deildar Þjóðadeildar UEFA. Ísland var yfir lengi vel í leiknum en mark undir lok leiks frá Ísrael sá til þess að liðin skiptu með sér stigunum.
Íslenska þjóðin sat límd yfir skjánum á Viaplay og hafði þetta að segja.
The Dorrit Moussaieff Derby is finally upon us! 90 minutes of war and then friends again! #DMDerby 🇮🇱🇮🇸 pic.twitter.com/GkDGPCI4qV
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) June 2, 2022
Vonandi skref að upprisu landsliðsins. Ungt og spennandi lið með nægan efnivið með gott jafntefli gegn Ísrael. Jón Dagur, Hákon og Arnór flottir en smá ves í hjarta varnarinnar. Það eru betri tímar í vændum eftir hörmungar gengi í allt of langan tíma.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) June 2, 2022
Stig og mjög góð frammistaða, tek þessu #fyririsland #fotboltinet
— Haraldur Örn Haraldsson (@haraldur_orn) June 2, 2022
Hörður Magnússon: "Arnór Sigurðsson; eftir magnaðan sprett hjá Herði Magnússyni."
Djöfull sem ég hef saknað Hödda Magg!
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) June 2, 2022
Hákon Arnar Haraldsson. That’s it. That’s the tweet #fotbolti
— Guðmundur Marinó (@GummiMarino) June 2, 2022
Þessi sending hjá Herði😍
— Einar Guðnason (@EinarGudna) June 2, 2022
Kannski erum við að fara að vinna leik. Ég er ekki vanur þessu undanfarið 😳. #fotbolti
— Jens 🇮🇸🇺🇦 (@PxrpleHxze) June 2, 2022
Það sem Hákon frændi er búinn að vera flottur í fyrsta landsleiknum.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) June 2, 2022
Mjög flottur fyrri hálfleikur. Afleitur varnarleikur í marki Ísraels reyndar og þarf að laga aðeins skjálftann í vörninni. Hákon Arnar og Jón Dagur borið af #fotboltinet
— Sigurður Marteinsson (@siggimarteins) June 2, 2022
Skagamennirnir tveir Arnór Sig og Hákon lang bestir í kvöld. Því fleiri skagamenn því betra 👌🏼
— Hilmar (@hilmarhalldorss) June 2, 2022
Ég er orðinn einhver harðasti Hákons maður landsins. Proper baller innit
— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) June 2, 2022