

Klámsíðan CamSoda tók eftir því að mikil aukning var í heimsóknum á síðuna strax í kjölfar þess að England datt úr leik gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í Katar um síðustu helgi.
Frakkar unnu 2-1 sigur í leik þar sem Englendingar stóðu sig þó vel. Harry Kane klikkaði á víti á ögurstundu og Frakkar unnu.
Stjórnendur CamSoda tóku eftir því að enskir stuðningsmenn virtust reyna að gleyma sorgum sínum með því að leita í klámið.
Á laugardagskvöldinu sem leikurinn fór fram jókst notkun á síðunni um 49% og voru ákveðnir flokkar sem stóðu upp úr.
Eftirspurn eftir frönskum fyrirsætum jókst til að mynda um 57 prósent, sem má beintengja við tapið.
Áhorf á myndbönd sem innihéldu fætur jókst þá um 22 prósent.