fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
433Sport

FH staðfestir komu Sindra

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 16. nóvember 2022 13:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH hefur staðfest komu Sindra Kristins Ólafssonar til félagsins frá Keflavík. Skrifar hann undir þriggja ára samning.

„Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH. Sindri hefur að undanförnu sannað sig sem einn besti markvörður landsins en þessi hávaxni leikmaður hefur spilað með Keflavík allan sinn feril.,“ segir á vef FH.

Sindri er fyrsti leikmaðurinn sem Heimir Guðjónsson fær til FH en hann var ráðinn þjálfari liðsins í síðustu viku.

Sindri er fæddur árið 1997 en hann spilaði 25 leiki fyrir Keflavík í Bestu deildinni í sumar og stóð sig með miklum ágætum.

FH ákvað að endursemja ekki við Gunnar Nielsen sem hefur yfirgefið félagið. Atli Gunnar Guðmundsson kvaddi svo FH fyrr í dag.

Sindri var í landsliðshópi Íslands sem mætti Sádí Arabíu og Suður-Kóreu á dögunum en kom þó ekki við sögu í þeim leikjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér

Þetta er það dýrasta sem Cristiano Ronaldo hefur nokkurn tímann keypt sér
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn

Jóhann Berg snýr aftur í landsliðshópinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband

Tveir starfsmenn reknir fyrir þetta athæfi sitt í beinni útsendingu – Myndband
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“

Leikmaður United pirraður við stuðningsmann – „Sýnið einkalífi mínu smá virðingu“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans

Sjáðu harkalegar möttökur sem Trent fékk á Anfield og viðbrögð hans
433Sport
Í gær

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins

Ronaldo hrósar Arsenal í hástert – Var nálægt því að fara til félagsins
433Sport
Í gær

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni