fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Fluttur að heiman nokkrum dögum eftir að eiginkonan neitaði fyrir að hann væri að halda framhjá

433
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi Chelsea-leikmaðurinn Álvaro Morata er sagður hafa flutt af heimili fjölskyldu sinnar eftir að eiginkona hans, fyrirsætan Alice Campello, neitaði sögusögnum um að hann hefði verið henni ótrúr. Þetta herma spænskir fjölmiðlar.

Morata og Campello slitu hjónabandi sínu skömmu eftir að Spánn vann EM 2024, en þau höfðu verið gift í sjö ár. Parið ákvað síðar á síðasta ári að gefa sambandinu annað tækifæri. Nú greinir spænska tímaritið Hola þó frá því að þau hafi búið í sitthvoru lagi í nokkrar vikur.

Samkvæmt fréttinni hefur Morata flutt af heimili fjölskyldunnar og Campello er nú ein eftir með fjögur börn þeirra, tvíburana Alessandro og Leonardo, auk Edoardo og Bellu.

Þrátt fyrir þetta er samband þeirra sagt kurteist og hafa hvorki Morata né Campello tjáð sig opinberlega um málið.

Fréttirnar koma í kjölfar þess að Campello neyddist til að hafna orðrómi um að Morata hefði átt í ástarsambandi við Elenu Sirigu, sérfræðing í íþróttastjórnun. Campello sagði Sirigu vera fjölskylduvin sem hún hefði þekkt í mörg ár og fullyrti að ásakanirnar væru rangar og ósanngjarnar.

Morata leikur nú á Ítalíu eftir að hafa gengið til liðs við Como á láni frá AC Milan, en hann hafði áður reynt að knýja fram félagaskipti aftur til Spánar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað