fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Horfa til hollenska landsliðsmannins eftir að Guehi fór í City

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur áhuga á miðverðinum Micky van de Ven, sem leikur með Tottenham Hotspur og hollenska landsliðinu. Van de Ven, sem er 24 ára gamall, á enn eftir að skrifa undir nýjan samning við Spurs og hefur það vakið áhuga annarra stórliða í ensku úrvalsdeildinni.

Hollendingurinn gekk til liðs við Tottenham frá Wolfsburg sumarið 2023 og hefur síðan verið lykilmaður í vörn liðsins. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir hraða sinn, styrk og öryggi í varnarleiknum, og er talinn einn öflugasti miðvörður deildarinnar.

Samkvæmt Daily Mail fylgist Liverpool grannt með stöðu mála hjá Tottenham og gæti nýtt sér það ef samningsviðræður ganga ekki upp.

Liverpool er talið vera á höttunum eftir að styrkja varnarlínuna fyrir komandi tímabil og gæti Van de Ven verið mikilvæg viðbót við lið Arne Slot, sérstaklega með tilliti til framtíðaruppbyggingar liðsins. Liverpool hafði lengi viljað fá Marc Guehi sem fór að lokum til Manchester City.

Tottenham vill þó halda leikmanninum og mun líklega reyna að tryggja honum nýjan samning á næstu mánuðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað