fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Gerrard orðnir þreyttur á að hlusta á Arne Slot tala um þetta

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 12:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steven Gerrard hefur skorað á Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, að hætta að kvarta undan liðum sem leggjast til baka í viðtölum og einbeita sér þess í stað að því að finna lausnir. Ummælin féllu eftir 3-0 sigur Liverpool á Marseille í Meistaradeildinni.

Slot sagði eftir leikinn að helsti veikleiki liðsins væri þegar andstæðingar verjast aftarlega á vellinum, sem komi í veg fyrir að Liverpool geti sýnt stöðugleika í frammistöðu.

Hann hefur ítrekað nefnt þetta vandamál á tímabilinu og ræddi það ítarlega í viðtali við TNT Sports.

„Ég veit nákvæmlega af hverju við erum ekki stöðugir. Það tengist því þegar lið spila aftarlega og loka svæðum,“ sagði Slot og bætti við að slíkar aðstæður krefðust allt annarrar hæfni en opnir leikir þar sem bæði lið pressa hátt.

Gerrard, goðsögn hjá Liverpool, var þó ekki sammála. „Hann þarf að hætta að tala um þetta,“ sagði Gerrard.

„Svona hefur þetta alltaf verið hjá Liverpool. Lið munu gera allt til að stöðva þá.“

Að hans mati snýst málið um að finna lausnir. „Þú ert með leikmennina til þess. Breyttu jafnteflum í sigra. Þetta mun ekki breytast,“ sagði Gerrard og bætti við að lykilleikmenn yrðu að stíga upp og skora þegar mest á reynir, meðal annars gegn Bournemouth um helgina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað