fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Mætti í beina útsendingu tveimur vikum eftir andlátið í fjölskyldunni – „Það var óvanalegur kvíði“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 10:00

Gabby Logan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabby Logan viðurkennir að hún hafi glímt við óvanalegan kvíða þegar hún sneri aftur á sjónvarpsskjáinn í fyrsta sinn eftir andlát föður síns.

Logan, 52 ára, sneri aftur til starfa á Prime Video á þriðjudagskvöldið þegar Arsenal vann Inter Mílanó 3-1 á San Siro í Meistaradeildinni. Endurkoman kom tveimur vikum eftir að faðir hennar, Terry Yorath, fyrrverandi leikmaður Leeds og velska landsliðsins, lést 75 ára að aldri eftir stutt veikindi.

Logan hafði verið að stýra Match of the Day þegar hún þurfti að yfirgefa þáttinn skyndilega vegna „fjölskylduaðstæðna“. Nú segir hún fótboltann hafa hjálpað sér og fjölskyldunni mikið í sorgarferlinu.

„Ég ætla ekki að þykjast að þetta hafi verið auðvelt,“ skrifaði Logan á Instagram.

„Síðast þegar ég var að kynna fótboltaþátt fékk ég símtal sem hefur gjörbreytt lífi okkar. Þannig að það var ákveðinn óvanalegur kvíði og smá uggur við að ferðast til Mílanó.“

Hún hrósaði teymi Prime Video sérstaklega. „Fótboltafjölskyldan hjá Prime er svo yndisleg og á endanum var frábært að vera aftur komin og gera það sem ég elska svo mikið og auðvitað gaf Arsenal okkur frábæra sögu til að segja.“

Að lokum bætti hún við. „Á þessum tveimur vikum síðan pabbi lést hefur fótboltinn virkilega verið afl til góðs í lífi okkar. Samfélagið er sterkt og stígur fram þegar á þarf að halda og við munum aldrei gleyma því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin