fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Eitt enskt lið og stórlið í Evrópu vilja fá Trent – Real Madrid sagt skoða að að selja hann

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 09:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Trent Alexander-Arnold gæti verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina en jafnframt hefur evrópskt stórveldi sýnt honum áhuga. Newcastle hefur áhuga á að fá bakvörðinn.

Alexander-Arnold gekk til liðs við Real Madrid síðasta sumar í samningi sem nam um 10 milljónum punda, en Madrídarliðið greiddi upphæðina til að fá hann áður en samningur hans við Liverpool rann út. Englendingurinn lék fimm leiki á HM félagsliða síðasta sumar og hefur alls komið við sögu í 11 leikjum á tímabilinu, þar af átta í spænsku La Liga.

Þrátt fyrir væntingar hefur aðlögun hans að spænsku deildinni ekki gengið snurðulaust. Samkvæmt spænska miðlinum Fichajes hefur innkoma hans verið erfið, meiðsli hafa sett strik í reikninginn og frammistaðan ekki verið á því stigi sem Real Madrid vonaðist eftir.

Í kjölfarið er talið að Real Madrid íhugi að selja bakvörðinn, þrátt fyrir að hann hafi skrifað undir sex ára samning. Í sömu frétt kemur fram að Bayern München fylgist grannt með stöðu hans og vilji nýta sér mögulega óánægju leikmannsins. Newcastle fylgist einnig með.

Þýska stórliðið er að leita að styrkingu hægra megin í varnarlínunni og Vincent Kompany, þjálfari Bayern, sér Alexander-Arnold sem kjörinn leikmann til að skapa hættur með nákvæmum fyrirgjöfum inn í teiginn.

Það gæti því orðið skammvinn dvöl hjá Real Madrid ef þróunin heldur áfram í þessa átt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað