fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
433Sport

Ungur maður bráðkvaddur í miðjum leik í gær – „Þetta var svo skyndilegt, það var enginn tími fyrir neitt“

433
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harmleikur átti sér stað í portúgölskum fótbolta í gærkvöldi þegar Nassur Bacem, varnarmaður LGC Moncarapachense, lést eftir að hafa hnigið niður í bikarleik gegn Imortal DC.

Atvikið átti sér stað á 27. mínútu í leik liðanna í þriðju umferð Algarve-bikarsins, sem fram fór í Olhao. Bacem, sem var 27 ára gamall vinstri bakvörður, fór í hjartastopp á vellinum.

Læknar og sjúkraþjálfarar beggja liða veittu honum strax fyrstu hjálp og neyðarþjónusta var kölluð á vettvang, en lífi hans varð ekki bjargað og hann var úrskurðaður látinn á staðnum.

Moncarapachense, sem leikur í fjórðu deild í Portúgal, staðfesti andlátið í færslu á Instagram. „Leikmaðurinn hneig til jarðar eftir hjartastopp. Allar neyðaraðgerðir voru virkjaðar samstundis, en því miður var ekki hægt að bjarga honum.“

Forseti félagsins, Nemésio Martins, tjáði sig einnig. „Ég á engin orð. Þetta var svo skyndilegt, það var enginn tími fyrir neitt.“

Leiknum var hætt í kjölfarið og portúgalskur fótbolti syrgir nú ungan leikmann sem féll frá allt of snemma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans

Rodri kærður – Sekt eða bann bíður hans
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli

Fyrrum leikmaður United inn í teymið – Á að hjálpa Andra Lucasi og félögum að bjarga sér frá falli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt

Liverpool á meðal þeirra sem freista þess að fá hann frítt
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað

Myndband af óhappi á líkamsræktarstöð vekur athygli – Margir furða sig á að enginn hafi hjálpað