fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Kynþokkafyllsta kona heims fann ástina í örmum Love Island stjörnu

433
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Montel McKenzie úr Love Island hefur opinberað samband sitt við „kynþokkafyllsta knattspyrnukonu heims“, Alishu Lehmann.

Fyrrum keppandi í ITV2-þættinum Love Island, hinn 28 ára Montel McKenzie, gerði samband sitt við svissnesku knattspyrnukonuna Alishu Lehmann opinbert á samfélagsmiðlum þegar hann óskaði henni til hamingju með 27 ára afmælið sitt á dögunum.

Þetta kemur í kjölfar þess að Montel sleit sambandi sínu við Kaz Crossley, sem hann kynntist í villunni, í júní.

Montel birti fjölda mynda og myndbanda þar sem hann sést kúra með Lehmann í fríi. Alisha, sem leikur með FC Como og svissneska landsliðinu, var í hvítum bikiní og mátti sjá hana sitja í fanginu á Montel áður en hún kyssti hann á ennið.

Parið sást einnig á strandklúbbi þar sem þau sátu saman og sýndu færni sína í blaki.

Lehmann, sem hefur verið kölluð fallegasta knattspyrnukona í heimi af aðdáendum sínum á netinu, hóf feril sinn í ensku úrvalsdeild kvenna með West Ham árið 2018. Hún átti áður í sambandi við Douglas Luiz, landsliðsmann frá Brasilíu, en þau slitu sambandi sínu árið 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin