fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Lögreglan leitar að manni sem kveikti í Cristiano Ronaldo

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla á Madeira leitar nú að skemmdarvargi sem kveikti í styttu af Cristiano Ronaldo á heimseyju knattspyrnustjörnunnar og birti myndband af furðulegu athæfi sínu á samfélagsmiðlum.

Ungur maður, sem virtist ósnyrtilegur til fara, tók sjálfan sig upp þar sem hann hellti eldfimum vökva yfir bronsstyttu af fyrrverandi leikmanni Manchester United og Real Madrid, áður en hann kveikti í henni með kveikjara.

Þegar logarnir tóku að breiðast út um styttuna og voru við það að ná í húfu sem hann var með á höfðinu, steig hann til baka til að forðast hættu.

Í framhaldinu tók hann að dansa villtan dans við rapp-tónlist sem ómaði úr hátalara sem hann hafði meðferðis. Myndbandið var tekið snemma á þriðjudagsmorgni við CR7-safnið í höfuðborg Madeira, Funchal, sem er helgað ferli Ronaldo, og var birt á Instagram-reikningi hans þar sem hann hefur um 1.000 fylgjendur.

Með myndbandinu birti hann einnig dularfull skilaboð þar sem stóð. „Þetta er síðasta viðvörun Guðs.“

Ekki liggur strax fyrir hvort styttan hafi orðið fyrir varanlegum skemmdum. Hún var flutt á núverandi stað árið 2016 eftir að hún hafði áður verið skemmd af stuðningsmönnum Lionel Messi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin