fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
433Sport

Liverpool með sýningu í Frakklandi – Chelsea vann með herkjum og Newcastle í stuði

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 21. janúar 2026 21:57

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool gerði góða ferð til Marseille í Meistaradeildinni í kvöld og vann þar 4-0 sigur á erfiðum útivelli.

Mo Salah var mættur aftur og fór beint inn í byrjunarliðið. Dominik Szoboszlai skoraði fyrsta mark leiksins en lagleg aukaspyrna hans endaði í markinu.

Ungverjinn öflugi skaut undir vegginn og í netið fór boltinn. Markvörður Marseille setti svo boltann í eigið net í síðari hálfleik áður en Coady Gakpo bætti við þriðja markinu í uppbótartíma. Liverpool í frábæri stöðu til að enda á meðal efstu átta liða.

Chelsea marði PAFOS á heimavelli þar sem Moises Caicedo skoraði eina mark leiksins. Chelsea með þrettán stig og sitja í áttunda sætinu.

Newcastle vann 3-0 sigur á PSV á heimavelli þar sem Yoanne Wissa skoraði fyrsta mark leiksins, áður en Anthony Gordon og Harvey Barnes bættu við. Newcastle með 13 stig í sjöunda sætinu.

Barcelona gerði óvænt 2-2 jafntefli við Slavia Prag og Juventus vann 1-0 sigur á Benfica. FC Bayern vann auðveldan 2-0 sigur á Union frá Belgíu og Athletic Bilbao vann 2-3 sigur á Atalanta á heimavelli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi

Opinberuðu tíðindin af Söndru með afar skemmtilegu myndbandi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi

Stjarnan unga sögð á blaði hjá fjórum liðum á Englandi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær

Rándýrar breytingar í Manchester – Svona verða þær
433Sport
Í gær

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London

Sesko bjargaði stigi fyrir United í London
433Sport
Í gær

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin

Chelsea glutraði forskotinu niður og vandræði Tottenham halda áfram – Sjáðu ótrúlegt klúður Palmer í blálokin