fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
433Sport

Fáðu að skyggnast á bakvið tjöldin við gerð skjaldarins

433
Fimmtudaginn 27. október 2022 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlalið Breiðabliks tekur á móti nýjum verðalaunagrip í Bestu deild karla á laugardaginn þegar liðið fær Víking í heimsókn í lokaumferð deildarinnar. Nýr verðlaunagripur Bestu deildarinnar var frumsýndur í byrjun mánaðarins þegar að Valskonur tóku í fyrsta skipti við meistaraskildinum. Í myndbandinu sem fylgir fréttinni fáum við að skyggnast bakvið tjöldin við gerð skjaldarins, allt frá hugmynd til hönnunar og framleiðslu.

Skjöldurinn er gjöf frá Norðuráli

Það vekur athygli að skjöldurinn er steyptur úr áli og er alfarið íslensk framleiðsla.

„Í hönnunarferlinu kom upp sú hugmynd að steypa skjöldinn úr íslensku áli. Við höfðum samband við Norðurál sem tók mjög vel í hugmyndina og bauðst til þess að kosta gerð skjaldarins sem við erum mjög þakklát fyrir. Skjöldurinn er gerður úr Natur-Al áli sem Norðurál framleiðir, en það er grænasta áli í heimi og kolefnissporið er innan við fjórðungur af heimsmeðaltalinu,“ segir Björn Þór Ingason markaðssstjóri ÍTF

Sigurvegarar frá upphafi ritaðir á bakhlið skjaldarins

Á bakhlið skjaldarins verður ritað nöfn allra meistara frá upphafi og gert er ráð fyrir því að hægt sé að veita skjöldin allt til ársins 2111.

„Innblástur vörumerkis Bestu deildarinnar og skjaldarins kemur nánast að öllu leyti frá merki sem grafið var í fyrsta Íslandsmeistaratitilinn frá árinu 1912. Okkur fannst það skemmtilegt að hugsa þennan skjöld sem ákveðið framhald af fyrsta bikarnum og því vildum við að hafa alla meistara frá upphafi á bakhlið skjaldarins,“ segir Björn Þór

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Barcelona til í að losa átta leikmenn til að fjármagna kaup á þremur

Barcelona til í að losa átta leikmenn til að fjármagna kaup á þremur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Minningarsjóður Egils Hrafns styrkir Fylki og Selfoss

Minningarsjóður Egils Hrafns styrkir Fylki og Selfoss
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vilja fá hann fyrir HM vegna meiðslavandræða

Vilja fá hann fyrir HM vegna meiðslavandræða
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Glódís er leikfær

Glódís er leikfær
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir

Arsenal opinberar nýja búninga og viðbrögðin standa ekki á sér – Myndir
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool

Ekkert kemur í veg fyrir að hann endi hjá Liverpool
433Sport
Í gær

Segja þá hafa tekið óvænta ákvörðun varðandi Walker

Segja þá hafa tekið óvænta ákvörðun varðandi Walker
433Sport
Í gær

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal

Mikil gleðitíðindi fyrir Arsenal