Það var líf og fjór í Afríkukeppninni í gær en mikil spenna er í öllum leikjum og lítið er skorað.
Nígería vann 1-0 sigur á Egyptalandi í stórleik gærdagsins þar sem Kelechi Iheanacho skoraði eina mark leiksins.
Þessi öflugi framherji Leicester er til alls líklegur á þessu stórmóti.
Mo Salah sem er ein af stjörnum mótsins lét lítið til sín taka en mikil vonbrigði voru með leik Egypta.
Það helsta úr leiknum má sjá hér að ofan en myndbandið er birt með leyfi Viaplay.