fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fjögurra barna móðir brjáluð eftir að kynlífsmyndbandi með henni var lekið – Óttast að börnin sjái myndbandið

433
Föstudaginn 26. ágúst 2022 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alex Le Tissier, tengdadóttir Southampton-goðsagnarinnar Matt Le Tissier, hefur greint frá því að kynlífsmyndband af henni og eiginmanni hennar hafi verið lekið á netið. Hún er hrædd um að börn þeirra fjögur muni einn daginn sjá það.

Alex heldur úti OnlyFans-reikningi, þar sem aðdáendur geta keypt sér aðgang að kynferðislegu efni með henni. Hún segir kynlífsmyndbandinu hafa verið lekið af „lágkúrulegum“ áskrifanda þar.

„Mér varð strax óglatt þegar ég frétti að því hafi verið lekið. Þetta er ógeðslegt að mínu mati,“ segir Alex.

„Ég veit að margir munu lesa þetta og hugsa að ég hafi sjálf komið mér í þessa stöðu, en fólk þarf að skilja hvað samþykki er. Ef þú kaupir þér aðgang að efninu mínu á OnlyFans er það með samþykki. Þú mátt skoða þessar myndir og myndbönd eins og þú vilt. Það þýðir hins vegar ekki að þú megir sýna heiminum þetta.“

Alex hefur áhyggjur af því að börn hennar geti nálgast efnið. „Ég hef áhyggjur af því að þau geti flett upp nafninu mínu og fundið þetta. Þetta efni er læst á OnlyFans-reikningi mínum af ástæðu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“