Stebba Sigurðardóttir var mætt á Laugardalsvöll í gær ásamt Birki Má Sævarssyni eiginmanni sínum og fyrrum landsliðsmanni í knattspyrnu. Henni blöskraði framkoma nokkra stuðningsmanna Íslands að leik loknum.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu gerði í gær 1-1 jafntefli við Albaníu í B-deild Þjóðadeildar UEFA.
Jafnræði var með liðunum til að byrja með í leiknum en á 30. mínútu kom Seferi, sóknarmaður Albana gestunum yfir. Boltinn datt fyrir fæturna á Seferi eftir að Rúnar Alex hafði varið boltann áður út í teig. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiks. Íslendingar komu tilbúnir til leiks í þeim seinni. Það tók liðið um það bil þrjár mínútur að jafna metin. Það gerði Jón Dagur Þorsteinsson eftir skyndisókn.
Stebba segir á Twitter frá upplifun sinni í stúkunni að leik loknum. „Varð fyrir svo miklum vonbrigðum með óþverrann í stúkunni í kvöld eftir leik. Leikmenn ganga til klefa og fjölskyldur þeirra að bíða eftir að fá að knúsa sína menn “þetta er kærasta XXX, hún er svo ljót”,“ skrifar Stebba.
Varð fyrir svo miklum vonbrigðum með óþverrann í stúkunni í kvöld eftir leik. Leikmenn ganga til klefa og fjölskyldur þeirra að bíða eftir að fá að knúsa sína menn “þetta er kærasta XXX, hún er svo ljót” Gott fólk! Samfélagið þarf á @ofgarofgar að halda
— Stebba Sigurðardótti (@StebbaSig) June 6, 2022
Hún segir að íslenskt samfélag þurfi á aðgerðarhópnum Öfgar að halda. „Gott fólk! Samfélagið þarf á Öfgar að halda.“
Öfgar svara Stebbu á Twitter. „Þetta er ömurleg kvenfyrirlitning.Við þurfum svo sannarlega að halda áfram í róttækum aktívisma og vinna gegn þeirri þróun að virði kvenna felist í útliti,“ skrifa Öfgar á Twitter.