fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
433Sport

Arnar Þór velur landsliðshóp í dag – Fjöldi reyndara leikmanna gætu snúið aftur

433
Miðvikudaginn 25. maí 2022 11:00

Eyþór Árnason/Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari Íslands mun í dag velja hóp sinn fyrir fjóra leiki í júní. Miðasala á leiki A karla gegn Albaníu og Ísrael í júní hefst í dag klukkan 25. maí kl. 12:00 á tix.is.

Leikirnir eru báðir í Þjóðadeild UEFA og fara þeir fram á Laugardalsvelli. Ísland mætir Albaníu 6. júní kl. 18:45 og Ísrael 13. júní kl. 18:45.

Ísland leikur fjóra leiki í júníglugganum, en fyrsti leikur liðsins verður gegn Ísrael ytra fimmtudaginn 2. júní kl. 18:45. Liðið mætir svo San Marínó einnig ytra fimmtudaginn 9. júní kl. 18:45.

Leikir A karla í júní
Ísrael – Ísland fimmtudaginn 2. júní kl. 18:45
Ísland – Albanía mánudaginn 6. júní kl. 18:45
San Marínó – Ísland fimmtudaginn 9. júní kl. 18:45
Ísland – Ísrael mánudaginn 13. júní kl. 18:45

Aron Einar Gunnarsson gæti snúið aftur í liðið. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ sagði við Fréttablaðið að Arnari væri heimilt að velja hann eftir að kæra vegna nauðgunar var felld niður.

Alfreð Finnbogason, Guðlaugur Victor Pálsson og Sverrir Ingi Ingason eru allir heilir heilsu og gætu snúið aftur í liðið.

Jóhann Berg Guðmundsson kantmaður Burnley er áfram frá vegna meiðsla og verður ekki í hópnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham
433Sport
Í gær

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið
433Sport
Í gær

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi