Rúnar Kristinsson þjálfari KR segir of marga leikmenn á Íslandi fá of mikið borgað miðað við framlag. Rúnar ræddi málið í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin.
Rúnar segir frá því að hann hefði gjarnan viljað fá Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Jóhannsson sem fóru báðir í Val.
„Við tölum bara við umboðsmenn og hina og þessa þegar við leitum að leikmönnum, og maður fréttir það mjög fljótt hvað það muni kosta að ná í þennan leikmann eða hinn. Þá segir maður stundum „heyrðu ókei, þá skulum við bara sleppa þessu“. Við þurfum aðeins að hugsa um rekstur félagsins líka,“ sagði Rúnar í Þungavigtinni.
Hann segir að leikmenn á Íslandi geti unnið með fótbolta og miðað við framlag séu laun að verða alltof hó.
„Mér finnst persónulega stundum allt of margir leikmenn á Íslandi á allt of háum launum, miðað við framlag og vinnu. Við erum að æfa klukkan fimm á daginn, alla daga. Þessir strákar geta verið í annarri vinnu líka. Nú er ég ekki að dæma alla en félögin verða að stjórna því hvað þau eru að borga mönnum og hvað þau eru tilbúin að gera.“
Besta deild karla fer af stað eftir viku en KR-ingar eins og alltaf stefna að því að keppa um alla titla.