fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
433Sport

Segir íslenskum landsliðsmanni að kaupa sér ráðgjöf með samfélagsmiðla – „Menn verða að haga sér“

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 27. mars 2021 09:10

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti nokkra furðu að Mikael Neville Anderson miðjumaður FC Midtjylland var ekki í byrjunarliði U21 árs landsliðsins á fimmtudag. Mikael er í sterku liði í Danmörku og hefur átt nokkuð fast sæti í A-landsliðshópi Íslands.

Flökkusögur voru á kreiki um að Mikael væri lítillega meiddur en það var fjarri lagi. Rætt var um fjarveru Mikael í hlaðvarpsþætti Fótbolta.net í gær.

„Með fullri virðingu eru leikmenn úr Öster og Silkeborg að byrja inná í miðjunni í þessum U21 leik en ekki hann, ég skil það vel að honum finnist það furðulegt,“ sagði Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfari hjá Val í hlaðvarpi Fótbolta.net.

Mikael hefur vakið nokkra athygli fyrir svör sín og skoðanir á samfélagsmiðlum síðustu vikur, Haraldur telur að Mikael þurfi hjálp á þeim vettvangi.

„Að því sögðu ætti hann að kaupa sér einhverja ráðgjöf með samfélagsmiðla. Þú þarft ekki að segja allt sem þú ert að hugsa. En þetta er gaman fyrir okkur sem fylgjumst með úr fjarlægð. Minn punktur er að frá hans sjónarhóli er hann kannski stærri stjarna en einhverjir aðrir þarna, en menn verða að haga sér,“ segir Haraldur.

Mikael Neville mætti ekki í verkefni U21 árs liðsins í nóvember vegna verkefna með félagsliði. Magnús Már Einarsson, ritstjóri Fótbolta.net útilokar ekki að honum hafi verið refsað í slæmu tapi gegn Rússlandi á fimmtudag.

„Kannski er verið að refsa honum fyrir að gefa ekki kost á sér í U21 landsliðið í nóvember á meðan þeir sem byrjuðu voru á svæðinu. Kannski horfir Davíð þannig á hlutina að erfitt sé að taka hina út,“ segir Magnús Már Einarsson í Innkastinu á Fótbolta.net.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“

Dæmdur í fangelsi og laug að kornungum syni sínum: Skólabróðir færði honum fréttirnar – ,,Það var auðvelt að ljúga“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Allir á einu máli um Höllu forseta

Allir á einu máli um Höllu forseta
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir

Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sviss þar sem allt er undir
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra

Segir að United hafi gert ein stærstu mistök í sögu fótboltans í fyrra
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Iwobi orðaður við stórlið

Iwobi orðaður við stórlið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“

Ræddu stressið sem háði liðinu – „Maður þarf líka að geta stjórnað því“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sandra María: „Við þurfum að vera undirbúnar í það andlega“

Sandra María: „Við þurfum að vera undirbúnar í það andlega“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið

Bale reynir að kaupa uppeldisfélagið