Brighton og Leeds gerðu markalaust jafntefli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikið var á heimavelli fyrrnefnda liðsins.
Heimamenn voru betri aðilinn í dag og verða án efa svekktari með að hafa ekki tekist að finna sigurmarkið í dag.
Brighton er í áttunda sæti deildarinnar með 18 stig.
Leeds er í sautjánda sæti með 12 stig. Liðið hefur verið í vandræðum.