fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gríðarlega erfitt ár hjá KSÍ – Tveir þjálfarar hætt eftir að áfengi var haft um hönd

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 24. nóvember 2021 09:22

© 365 ehf / Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiður Smári Guðjohnsen lætur af störfum sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla þann 1 desember. Tengist það gleðskap þar sem sambandið hafði boðið upp á áfengi eftir leik. Er hann annar þjálfarinn hjá KSÍ á inann við ári sem hættir eftir að áfengi var haft um hönd í verkefni sambandsins.

Fyrir tæpu ári síðan hætti Jón Þór Hauksson sem þjálfari A-landsliðs kvenna. Hafði liðið þá komið sér inn á Evrópumótið í Ungverjalandi. Knattspyrnusambandið bauð þá í glas eftir frábært afrek landsliðsins en eitthvað fór úr böndunum. Var Jóni gert að hætta skömmu síðar.

Meira:
KSÍ búið að taka ákvörðun um að reka Jón Þór áður en fundað er

Á milli þessara atvika hafa komið upp mörg önnur erfið mál sem sambandið hefur átt í vandræðum með að leysa. Leikmenn landsliðsins hafa verið sakaðir um ofbeldi og kynferðisbrot.

Meira:
Endalok Eiðs Smára hjá KSÍ tengjast gleðskap sem sambandið bauð til

Í kringum þau mál hætti Guðni Bergsson sem formaður KSÍ og stjórnin sagði af sér á sama tíma. Ljóst er að kastljósið er aftur komið á sambandið eftir nokkuð rólegar vikur.

Mynd/Eyþór Árnason
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum