Jón Guðni Fjóluson, leikmaður Hammarby, er með slitið krossband í hné og verður frá keppni næstu níu mánuðina.
Jón Guðni þurfti að draga sig út úr íslenska landsliðshópnum á sunnudag eftir að hafa meiðst í leik með sænska félaginu.
Jón fór meiddur af velli í tapi gegn Norrköping. Við nánari skoðun kom í ljós að hann er með slitið krossband.
Þessi 32 ára gamli leikmaður gekk í raðir Hammarby í janúar og hefur staðið sig hreint frábærlega í vörn félagsins.
Jón kom til félagsins frá Brann í Noregi en áður lkk hann í Rússlandi. Hann lék með Sundsvall og Norrköping í Svíþjóð frá 2012 til 2018.