fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
433Sport

Heimir um mál Hannesar: „Þetta mál verður ekki leyst í fjölmiðlum eins og sumir halda“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 13. október 2021 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Guðjónsson þjálfari Vals segir að málefni Hannesar Halldórssonar verði ekki leyst í fjölmiðlum. Hannes steig fram í viðtali í gær og sagði að Heimir vildi losna við sig frá félaginu.

Valur hefur samið við Guy Smit sem kemur til félagsins frá Leikni. Hollenski markvörðurinn átti gott sumar í Efra-Breiðholti í sumar.

„Þetta mál verður bara leyst innan Vals. Þetta mál verður ekki leyst í fjölmiðlum eins og sumir halda,“ sagði Heimir í samtali við 433.is í dag en að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið.

Hannes var að klára sitt þriðja tímabil á Hlíðarenda en hann á ár eftir af samningi sínum við félagið. Ef ekkert félag reynir að kaupa Hannes frá Val má búast við því að hann klári sinn samning hjá félaginu.

„Ég get alveg sagt eins og er og sagt hlutina eins og þeir eru. Ég veit að þjálfarinn vill ekki hafa mig hjá félaginu og ég hef hvorki heyrt hóst né stunu frá félaginu síðan mér var tilkynnt það. Ég veit ekki hvers vegna eða hvernig menn hyggjast leysa þá stöðu. Ég er steinhissa á þessari stöðu.“ sagði Hannes á K100 í gær.

Hannes veit ekki hvernig málið leyist. „Ég veit ekki hvernig á að leysa þetta vegna þess að ég heyri ekki neitt. Eina sem ég veit er að þjálfarinn hyggst ekki nota mig en það er ákveðin pattstaða sem er komin upp. Ég á eitt ár eftir af samningi og hafði ekkert hugsað mér að hætta í fótbolta og sérstaklega ekki svona. Ég sit og bíð. Fyrsta æfing hjá Val er 10. nóvember og ég er bara að fara að mæta á hana.“

Hannes Þór gapandi hissa og heyrir hvorki hóst né stunu: „Heimir vill ekki hafa mig“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Maðurinn er fundinn
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Kemur ekki lengur til greina hjá United að losa Mainoo út af þessu

Kemur ekki lengur til greina hjá United að losa Mainoo út af þessu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hojlund sendi sneið á Manchester United eftir sigur í gær

Hojlund sendi sneið á Manchester United eftir sigur í gær
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Salah hetja Egyptalands
433Sport
Í gær

England: Jimenez hetja Fulham

England: Jimenez hetja Fulham
433Sport
Í gær

Isak er búinn í aðgerð

Isak er búinn í aðgerð
433Sport
Í gær

Nýkominn aftur eftir 30 mánaða bann en gæti strax farið annað

Nýkominn aftur eftir 30 mánaða bann en gæti strax farið annað
433Sport
Í gær

Fékk afmæliskveðju úr mjög óvæntri átt – Voru dæmdir til að greiða honum níu milljarða

Fékk afmæliskveðju úr mjög óvæntri átt – Voru dæmdir til að greiða honum níu milljarða